Ráðherrann, Choi Kyo-jin, segist axla fulla ábyrgð á þeim aðgerðum sem hann ákvað að láta grípa til í þeirri von um að koma í veg fyrir að nemendur nýttu gervigreind í samræmdu inntökuprófi í háskóla landsins. Prófið er um níu klukkutíma langt og þykir taugatrekkjandi.
Símar glumdu
Aðgerðirnar voru nokkuð óhefðbundnar en hann nýtti kerfi á borð við það sem almannavarnir nota í mörgum ríkjum til að koma skilaboðum um hættu á framfæri.
Þrjár viðvaranir sem líkjast almannaviðvörunum voru sendar á milli klukkan 08:00 og 15:00 að staðartíma á fimmtudag sem varð til þess að símar um allt land glumdu samtímis, jafnvel þótt þeir væru stilltir á hljóðlausa stillingu. Eðlilega vissu flestir ekki hvaðan á sig stóð veðrið.
„Próftakar þurftu einnig að hylja hnappa á skyrtum sínum og jökkum til að koma í veg fyrir notkun falinna myndavéla, og yfirvöld skoðuðu gleraugu nemenda,“ segir í frétt BBC um málið.
Allt gerði þetta að verkum að þeir sem þreyttu prófin urðu fremur óttaslegnir og þorðu margir sem nota gleraugu ekki að mæta með þau í prófið. Ráðherrann segir í viðtali við staðarmiðil að hann beri ábyrgð á þeim glundroða sem skapaðist vegna þessara ákvarðana.
Þessi miklu viðbrögð menntamálaráðuneytisins eru vegna þess að vika er síðan nemandi viðurkenndi að hafa notað myndavél, farsíma og gervigreindartól þegar hann þreytti próf. Sá hafði fengið óvenju háa einkunn og svaraði aðeins einni af 160 spurningum rangri. Ráðuneytið hafði áður greint frá því að fleiri en hundrað próftakar hefðu fundist með snjalltæki á sér við próftöku af þeim 500 þúsund sem þreyttu prófið.