Sjónum var auðvitað beint að liðhlaupi Ingvars Þóroddssonar sem yfirgaf Viðreisn og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Sem er bara mjög skiljanlegt enda fengu fjölmargir útundanótta þegar að þingmenn minnihlutans í Norðausturkjördæmi stungu sér til sunds í Selárlaug á dögunum. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan.
Við fengum líka eina bestu neitun allra tíma þegar að Ingvar Þóroddsson tók fyrir það að formaður Viðreisnar hefði lagt mikið á sig við að halda honum innan flokksins. „Uuu.. nei,“ sagði þingmaðurinn. Sjaldan hefur maður heyrt í einhverjum sem er jafn ósannfærandi og jafn ósannfærður sjálfur.
Stærstu nöfnin á þinginu fóru í röð til að mæta í viðtal. Margir spurðu sig, bíddu af hverju er Lilja Alfreðsdóttir að tjá sig um vistaskipti Ingvars? En þá manstu að Lilja Alfreðsdóttir er formaður Framsóknarflokksins, og þá manstu, bíddu já, Framsókn er enn þá til. Síðan manstu að Lilja Alfreðsdóttir er ekki þingmaður og þurfti því að leggja leið sína sérstaklega niður eftir til að segja hvað henni finnst um þetta, en eins og maður segir á ensku: „Fake it till you make it“.
Sumir gætu sagt að það væri verið að sparka í liggjandi mann en það má þegar við vitum öll innst inni að Framsókn er að fara vinna stórsigur eftir sex ár með einhverju slagorði sem var skapað á rannsóknarstofu eins og: „Ekki gefast upp, framsókn er enn möguleiki“ eða „Framsókn er til“. Þið fattið, „til í slaginn“ en líka bara almennt til. Eða einfaldlega bara „skibidi Framsókn“.
Einræða Ingu Sæland um kynin í Bítinu var einnig tekin fyrir. Þar talaði hún um tilraun til að troða tveimru kynjum í tungumálið. Það má teljast áhugavert í ljósi þess að karlkyn, kvenkyn og hvorugkyn eru til staðar í íslenskri tungu, sem eru þrjú kyn en ekki tvö.
Þáttinn má sjá hér að ofan en þar má til að mynda sjá áður óséð efni úr svínabúi Stjörnugríss. Í ljósi þeirra frétta verður spennandi að sjá hvort það verði einhver hryggur um jólinn.