Gunnar Haraldsson hagfræðingur og fyrrum formaður Fjármálaráðs segir greinileg samdráttarmerki í hagkerfinu. Fyrirséð hafi verið að staðan yrði svona. Vandræði í byggingariðnaði, á húsnæðismarkaði og á vinnumarkaði hafi áhrif á stöðuna. Stærsta áhyggjuefnið sé lítill hagvöxtur.
„Ég held að í fyrsta lagi þá viljum við náttúrulega ekki að þetta sé eins og í gamla brandaranum, skurðlæknirinn sem sagði að aðgerðin hefði tekist vel en sjúklingurinn dó,“ segir Gunnar þegar hann talar um hagvöxt hér á landi.
Hann segir hagvöxt of lítinn og langt undir því sem hann telur eðlilegt. Gríðarlega margt komi til en hann segir að spár Seðlabankans geri ráð fyrir að hagvöxtur verði 1% í ár og að á næsta ári verði hann 1,2%.
„Þetta er auðvitað eitthvað sem ég held að allir sem nenna að velta því fyrir sér hljóti að hafa áhyggjur af. Þetta spilar svo inn í opinberu fjármálin til dæmis. Það verður bara hreinlega minna úr að moða, það verða minni tekjur hins opinbera ef hagvöxtur er minni en meiri.“
Ekki séríslensk staða
Staðan sé ekki séríslenskt fyrirbrigði.
„Þetta er eitthvað vandamál sem þjóðirnar í Evrópu sérstaklega, Bandaríkin eru dálítið sérstök... þróunin hefur verið öðruvísi þar, en þetta er vandamál sem þjóðir Evrópu eru að kljást við eins og við. En því miður þá sýnist mér að þetta sé eiginlega enn verra hér en víða annars staðar. Þessi hagvöxtur og þessar hagvaxtarhorfur eru svona að mínum dómi eitthvað sem við ættum að hafa hreinlega áhyggjur af.“
Hlusta má á umræðuna í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Seðlabankinn spáir 17 milljarða halla á sama tíma og stjórnvöld segja að hallalausum fjárlögum verði náð. Gunnar segist ætla að fara varlega í að spá í spilin.
„En ég tek undir það auðvitað bara með Seðlabankanum eins og horfurnar eru að þá er þetta það sem stefnir í. Nú segja stjórnvöld að þau hafi gert ráð fyrir þessu og muni gera ráð fyrir þessu í annarri umræðu um fjárlögin og svo framvegis og það verður auðvitað mjög forvitnilegt og áhugavert að sjá hvaða áhrif þetta hefur en ég bara tek undir þetta, horfurnar eru verri en gert var ráð fyrir.“
Að óbreyttu verði halli á ríkisfjármálum. Hann segist hafa verið hugsi síðustu daga varðandi þá hugsun að ná hallalausum fjárlögum eða afgangi af ríkisfjármálum.
„Þetta er ekki markmið í sjálfu sér, það er til að ná fram öðrum markmiðum sem eru bara hreinlega velsæld í landinu. Og mér finnst kannski, svo ég komi aftur að hagvextinum, einhverjir gætu haldið að ég væri með hann á heilanum, en hagvöxtur er á endanum spurning um líf og dauða þannig að hann er gríðarlega mikilvægur.“
Vonar að stjórnvöld falli ekki í gryfjuna
17 milljarðar séu ekki gríðarleg upphæð í stóra samhenginu og því segir Gunnar að menn eigi ekki að einblína á að ná settu markmiði bara til að geta sagt að þeir hafi náð því. Það skipti engu rosalegu máli í stóra samhenginu hvort hallinn verði örfáir milljarðar eða hvort stjórnvöld skili sömu upphæð í afgang.
„Ég vona að stjórnvöld falli ekki í þá gryfju að fara einhvern veginn að grípa til einhverra rosalegra aðgerða eða einhverra aðgerða til að bara einhvern veginn fá út einhverja tölu eins og það sé aðalmálið. Sérstaklega ef um er að ræða til dæmis það sem heitir núna svo skemmtilega ráðstafanir á tekjuhlið.“