Rússneska flutningaskipið Sparta II sem gerð var drónaárás á á Finnlandsflóa í gærmorgun, hefur verið tekið í tog. Til stendur að draga skipið í rússneska lögsögu.
Eldur kviknaði í skipinu eftir drónaárásina og slökkvistarf hefur staðið fram eftir degi í dag. Finnska strandgæslan greinir frá því að hitamyndavélar sýni enn þá mikinn hita í gámum á skipinu en ástandið hafi verið metið nógu stöðugt til að setja skipið í tog.
Áhöfnin var flutt frá borði síðdegis í gær. Finnska ríkisútvarpið greinir frá því að einn úr henni hafi slasast í árásinni.
Skipið er í eigu fyrirtækis sem rússneska varnarmálaráðuneytið á og grunur leikur á að það hafi verið notað til að flytja vopn. Rússnesk yfirvöld hafa ekkert viljað gefa upp um farminn.