Fjögur ár eru síðan ákveðið var að endurnýja altarisklæði Borgarneskirkju.
Kirkjan var vígð 1959 og þar hafa verið sömu altarisklæðin frá upphafi, klæði eftir Sigrúnu Jónsdóttur kirkjulistarkonu frá Vík í Mýrdal.
Katrín Jóhannesdóttir tók að sér að sauma ný klæði.
Nýju altarisklæðin verða vígð í dag klukkan 18.
Mikil og gefandi vinna
Altarisklæði eru skrautlegir dúkar eða klæði sem notuð eru til að hylja og skreyta altari í kirkju.
Katrín segir að saumaskapurinn hafi tekið um tvö ár.
Borgarneskirkja var friðlýst í maí 2024 á 65 ára vígsluafmæli sínu. Við friðlýsinguna ákvað Katrín að breyta því hvernig hún hafði áður séð ný altarisklæði fyrir sér.
„Þá langaði mig til þess að halda mig í gömlu klæðin sem voru. Þannig ég fór í að endurgera þessi eftir hana Sigrúnu og saumaði alveg eins altarisklæði. Með táknunum trú, von og kærleikur í.“
Fyrir friðlýsinguna hafði Katrín hugsað sér að nota útsýnið frá kirkjunni, þar sem sér yfir fallegan fjallgarð.
Hundruð klukkustunda vinna er að baki hjá Katrínu. Hún segir vinnuna þó hafa verið einstaklega gefandi en hún er sjálf alin upp í Borgarnesi.
„En þetta var stórt verkefni. Altarið er stórt og langt. Þetta var svolítið veglegt verkefni.“