Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, segir að minni þörf sé á samþykktum á COP31, þar sem áherslan sé að færast frá samstöðu ríkja yfir í aðgerðir heima fyrir.
Hann bendir á að stór áfangi hafi náðst á ráðstefnunni 2015 þegar Parísarsamningurinn var undirritaður og síðan þá hefur náðst samstaða um útfærslu á þeim samningi á við framkvæmd og viðskipti með losunarheimildir.
Áherslan sé núna að færast í aðgerðir heima fyrir og hvernig sé hægt að ná meiri árangri með samstarfi.
Engin lokasamþykkt var undirrituð á COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hefur yfir í Antalíu í Tyrklandi undanfarna daga. Það hefur aðeins gerst tvisvar síðan ráðstefnan var fyrst haldin fyrir rúmum 30 árum.
Olíuríkin einstrengingsleg
Halldór segir olíuríkin hafa verið einstrengingsleg og að þau hafi neitað að samþykkja orðalag um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, þrátt fyrir að mörg ríki vinni nú að því af fullum krafti.
Sama staða kom upp á loftslagsráðstefnunni í fyrra. „Þá var ætlunin að hvetja ríki til þess að koma með áætlanir um hvernig þau ætluðu að hætta að nota jarðefnaeldsneyti,“ segir Halldór.
Það hafi ekki verið samþykkt, en fyrr á þessu ári fór í gang svokallað Santa Marta-ferli meðal ríkja innan bandalagsins sem höfðu áhuga, þar sem þau miða að því að hætta notkun jarðefniseldsneytis. Ísland er meðal þessara ríkja.
Í spilaranum hér fyrir neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem endar á viðtali við Halldór Þorgeirsson formann loftslagsráðs.