Sko… það skal tekið fram strax í byrjun að þetta er ekki pistill um að fólk hætti að stunda kynlíf. Frekar að fólk breyti aðeins því sem áður tíðkaðist tengt kynlífi.
Því það sem oft gerist hjá fólki eftir 50+ – án þess að það sé nokkuð drama í kringum það – er að í stað þess að lifna allur við og vera til í tuskið þegar makinn leggur hönd á mjöðmina eða kyssir á hálsinn kemur upp hugsunin: Ah, svo gott að fara að sofa.
Þetta kemur því ekkert við að ástin sé að dala, hrifningin eða löngunin í kynlíf. Þetta er einfaldlega vísbending um að lífið hefur breyst: Líkaminn okkar þarf meiri hvíld. Hormón haga sér öðruvísi. Orkan er ekki lengur eins ótakmörkuð og síðan er það þessi einfalda staðreynd: Góður svefn er ekki lúxus. Hann er nauðsyn.
Það virkilega jákvæða við þessa breytingu er einmitt sú staðreynd að góð hvíld er grundvöllur góðs kynlífs. Sem þýðir að í raun geta pör bætt um betur í kynlífinu – jafnvel orðið meira til í að krydda upp á kynlífið – ef fólk er vel hvílt.
Í umfjöllun Harvard Health segir einfaldlega að fólk sem sefur betur hafi meiri orku, betra skap og oft meiri löngun í kynlíf.
Er það að stunda kynlíf á öðrum tímum – skipuleggja það jafnvel betur eða undirbúa – en fara þess í stað snemma að sofa á kvöldin kannski það besta sem pör geta gert fyrir gott kynlíf?