Riemann-tilgátan er ein frægasta óleysta ráðgáta í stærðfræði sem Bernhard Riemann setti fram árið 1859. Hún snýr að frumtölum, það er að segja heilum tölum stærri en einn sem einungis er hægt að deila með sjálfum sér og einum. Riemann velti því fyrir sér hversu oft frumtölur koma fyrir, hvernig þær dreifast og þróaði formúlu til að áætla hversu margar frumtölur séu til sem eru minni en tiltekin tala.
Áhugasamir geta lesið sér til um Riemann-tilgátuna á Vísindavefnum.
Levent Alpöge, tyrknesk-bandarískur stærðfræðingur, birti fyrir helgi á vefsíðu sinni að með aðstoð frá Claude, gervigreindarmállíkani Anthropic, hefði hann sannað Riemann-tilgátuna. Það hefði tekið gervigreindina sex vikur að leysa málið.
„Ég og Claude höfum átt góðan tíma saman undanfarna mánuði þar sem hefur borið á mikilli fjölbreytni, en í þetta skipti komst Claude langt fram úr mér þegar við nálguðumst endamarkið,“ skrifaði Alpöge um gervigreindarforritið.
„Nei, Claude flaug, dansaði og glitraði þarna við marklínuna.“
Í gær tilkynntu bæði Lean og Mathlib samtökin að þau hafi skoðað málið nánar og telji að Alpöge hafi tekist að sanna tilgátuna. Þau óska honum til hamingju. Riemann-tilgátan er ein af sjö tilgátum sem Clay Mathematics-stofnunin valdi árið 2000 og sögðust þá ætla að greiða þeim sem sannaði eina af tilgátunum milljón dollara samkvæmt umfjöllun The Guardian.