Það er rólegt að gera hjá lögreglunni á Austurlandi ef marka má Facebookfærslu þar sem má sjá mynd af lögreglumanni sem ypptir öxlum á auðri götu. Veltir lögreglan því fyrir sér hvort rólegheitin tengist frétt sem var áberandi í vikunni sem leið. Það má ráða af spurningunni sem fylgir myndinni: „Allir of uppteknir að keyra um í Vice City?“
Lögreglan á Austurlandi furðar sig á rólegheitunum - „Allir of uppteknir?“