„Ég hef eiginlega verið heltekinn af Íslandi síðan 2013. Það var þegar The Secret Life of Walter Mitty kom út. Hún er uppáhaldsmyndin mín og hefur verið lengi,“ segir Gabe.
The Secret Life of Walter Mitty var að miklu leyti tekin upp á Íslandi og vakti hún athygli heimsbyggðarinnar á landinu. Hollywoodleikarinn Ben Stiller fór með aðalhlutverkið en íslenskir leikarar líkt og Ólafur Darri og Gunnar Helgason sáust einnig á skjánum.
„Það var eitthvað við Walter Mitty sem snerti mig alltaf og ferðin hans til Íslands leit svo fallega út.“
Seinna meir tók Gabe að hlusta á íslenska tónlist. Það var fyrst tónlist Axels Flóvents sem heillaði hann og síðar meir Sigur Rós sem er í dag uppáhaldshljómsveitin hans. Á ferðalagi árið 2023 með bræðrum sínum uppgötvaði Gabe síðan verk Ragnars Kjartanssonar myndlistamanns.
„Við rákumst á hann algjörlega óvart á listasýningu í Danmörku árið 2023. Við höfum verið helteknir af Ragnari Kjartanssyni árum saman. Ég er með tvö plaköt af myndunum hans í herberginu mínu.“
Auk þess að hrífast af íslenskri tónlist og myndlist uppgötvaði Gabe einn daginn íslenskar glæpasögur.
„Ég fór á bókamarkaðinn á bókasafninu mínu og fór í glæpasagnadeildina og þar voru fimm bækur eftir Ragnar Jónasson. Ég hugsaði að ef ég ætlaði að byrja að lesa þessa nýju bókmenntagrein gæti ég alveg eins fengið margar bækur eftir sama gaurinn. Ég vissi ekkert að hann væri íslenskur og vissi ekki að þær gerðust á Íslandi fyrr en ég byrjaði að lesa þær.“
Glaður að myndböndin hafi áhrif
„Vinir mínir þekkja mig sem gaurinn sem elskar Ísland. Ég er ánægður með að vera þekktur þannig,“ segir Gabe.
Þá hafa fylgjendur Gabe á samfélagsmiðlinum TikTok einnig tekið eftir ástríðu hans fyrir Íslandi. Líkt og kom fram starfar hann sem áhrifavaldur og fylgjast rúmlega þrjár milljónir með myndskeiðunum sem hann birtir af ferðalögunum sínum. Það má gera ráð fyrir því að þó nokkrir Íslendingar hafi einnig orðið varir við myndskeið hans.
Það er miklu líklegra að einhver stöðvi Gabe hér á Íslandi þar sem hann kannast við myndskeiðin heldur en í heimaborg hans, New York.
„Eldri kona kom til mín og sagðist hafa séð sum myndböndin mín. Hún horfði aldrei á neitt um Ísland en myndböndin mín fengu hana til að hugsa um hvað Ísland er flott land. Mér finnst það fallegt,“ segir hann.
„Ég er glaður að myndböndin mín hafi haft þau áhrif á einhvern“
Gabe segir að fólkið á Íslandi sé mjög vingjarnlegt. Þar sem hann ferðast yfirleitt einn sé hann áfjáður í að tala við hvern sem er.
„Ég hef komist að því að það er miklu auðveldara að spjalla við fólk á Íslandi en í nokkru öðru norrænu landi. Það er ekki þar með sagt að fólk í Noregi sé ekki vingjarnlegt en það er einhvern veginn meiri þröskuldur sem þú þarft að komast yfir til að tala við fólk. Hérna tala ég við alla,“ segir hann.
„Þetta er eins og lítið samfélag sem er mjög notalegt því ef maður eignast einn vin þá er manni tekið opnum örmum.“
Gabe tekur einnig fram hversu gaman það sé að vera aðdáandi einhvers sem er hluti af svo litlu samfélagi. Í dag hafi hann hitt alla uppáhalds listamennina sína.
„Á einum degi hitti ég Ragnar Jónasson, Jónsa í Sigur Rós og Ragnar Kjartansson, alla sama eftirmiðdaginn. Svona hvern á fætur öðrum. Það var það besta. Ég var að senda bræðrum mínum skilaboð allan daginn. Þetta var besti dagur lífs míns. Það var svo spennandi.“
Beint norður í fyrstu ferð
Þessi áhrif íslensku listamannanna lituðu fyrsta ferðalag Gabe til Íslands sem var sumarið 2026. Sú ferð var í boði Icelandair vegna Listahátíðarinnar í Reykjavík. Aðspurður hvað Gabe vildi helst gera á meðan hann dvaldi á Íslandi var ekki efst á lista að sjá fossa eða svartar strandir heldur ferð norður til Akureyrar.
„Það er af því að allar bækur Ragnars Jónassonar gerast þar fyrir norðan. Ég vildi bara sjá það með eigin augum. Ég held að þau hafi verið svolítið hissa í fyrstu á því af hverju ég vildi fara þangað. Ég veit ekki hvort það sé það fyrsta sem fólk gerir þegar það kemur til Íslands,“ segir hann.
„Þetta var eiginlega svolítið handahófskennd fyrsta ferð til Íslands. Ég segi alltaf fólki að þetta sé fallegasta land sem ég hef komið til og ég gerði ekki einu sinni þessa fimmtán vinsælustu hluti sem fólk gerir þegar það kemur hingað.“
Sjálfur hafi hann verið með miklar væntingar fyrir ferðinni, enda búinn að bíða í um þrettán ár.
„Ég skrifa foreldrum mínum póstkort hvert sem ég ferðast. Ég man að í einu póstkortinu skrifaði ég að það væri sjaldgæft að staður stæði undir jafn miklum væntingum og maður gerir sér í huganum. En Ísland gerði það svo sannarlega.“
Þess virði að aka í klukkustundir fyrir stutta heimsókn
Önnur heimsókn Gabe var heldur hefðbundnari en það var til að vera viðstaddur Iceland Airwaves tónlistarhátíðina. Hún fór fram í október.
„Ég man að vikuna áður en ég kom bjó ég til heilan lagalista með öllum listamönnunum og ég var að hlusta á hann. Það var svo erfitt að ákveða hvern ég vildi fara að sjá af því að á hverjum tíma eru sjö listamenn að spila og þeir eru allir góðir,“ segir hann.
Á hverju kvöldi hafi hann reynt að sækja eins marga tónlistarviðburði og hægt var. Til að mynda fékk hann loksins að hlusta á Axel Flóvent í Fríkirkjunni. Dagarnir fóru einnig í að heimsækja þá staði sem taldir eru vera hefðbundnari ferðamannastaðir.
„Ég fékk loksins að sjá nokkra fossa þannig að ég gat hakað við þá. Ég fór í svona níu tíma bíltúr til að sjá fullt af fossum og það er klikkað af því að maður keyrir í svona tvo og hálfan tíma til að horfa á foss í 25 mínútur. Það er þess virði.“
Bara slæmur fatnaður
Þriðja heimsókn Gabe var sérstaklega til að sækja íslensku glæpasagnahátíðina Iceland Noir og var hann meðal annarra með erindi á hátíðinni. Það var nokkrum klukkustundum áður en Gabe var viðmælandi Ragnars Jónassonar á hátíðinni þegar blaðamaður náði tali af honum í Iðnó.
Hann sagðist vera nokkuð stressaður en þar sem hann lærði leiklist í háskóla ætti hann ekki að fá sviðsskrekk.
„Ég held að á einhverjum tímapunkti vilji hann að ég nefni fimm uppáhaldsbækurnar mínar og ég er búinn að ofhugsa það í alvörunni í tvo mánuði núna,“ segir Gabe og hlær.
„Ég held að ein þeirra eigi að vera eftir Ragnar,“ bætir hann við og nefnir bókina Rof sem kom út árið 2012.
Gabe settist við glugga á efri hæð Iðnó í miðbæ Reykjavíkur. Fyrsta snjókoma vetrarins kom á höfuðborgarsvæðinu degi áður. Það var ansi kalt úti og þegar hann horfði út um gluggann var hægt að sjá að Tjörnin var að mestu leyti frosin.
„Hvernig er orðatiltækið? Það er ekkert til sem heitir vont veður, bara lélegur fatnaður,“ spyr Gabe.
Hann var klæddur í þykka dúnúlpu frá 66°Norður sem hann hafði fest kaup á í síðustu ferð sinni, viku fyrir þessa. Úlpan hafði reynst honum vel á ferðalagi hans um Suðurlandið en stefnan var ekki að fara í sams konar bíltúr.
„Ég hugsa að ég vakni og eigi notalega morgna í Reykjavík. Það eru allt of margir að segja mér að fara í sund. Ég veit ekki hvort það sé öðruvísi en venjuleg sundlaug,“ segir Gabe.
„Ég ætla bara að ganga um, ég er með hlýju fötin mín og ég ætla að nota þau. Ég gekk svo mikið síðast og keyrði, mig langar eiginlega ekki að keyra svona mikið.“
Það sem Gabe tók þó sérstaklega eftir þegar hann bar saman allar Íslandsheimsóknirnar var munurinn á því að aka frá Keflavíkurflugvelli.
„Þegar ég lendi tekur það um það bil jafn langan tíma að komast í gegnum öryggisleitina og svo sæki ég bílaleigubílinn minn og svo keyri ég hingað og aksturinn er gjörólíkur í hvert skipti. Fyrsta skipti sem ég kom var í júní þannig að það var hábjartur dagur. Í síðustu viku fór að birta um það bil þegar ég var hálfnaður og í dag var dimmt allan tímann.“
Þarf einungis að vera almennilegur
Gabe starfar alla jafna sem áhrifavaldur sem ferðast á milli landa og deilir myndskeiðum frá ferðalögum. Aðspurður hvort hann geti lýst starfinu fyrir fólki sem starfar alla jafna á dagvinnutíma segist hann grínast með að hann sé atvinnulaus.
„Því mér finnst í alvörunni eins og ég sé ekki í vinnu. En það er líka skrýtið því eina skiptið sem mér finnst ég vera að vinna er þegar ég er að gera hluti sem flestir myndu ímynda sér að væru eins og frí. Þannig þegar ég er heima í New York þá líður mér eins og ég sé ekki að vinna,“ segir hann með bros á vör.
Áhuginn á ferðalögunum hófst þegar hann fór í skiptinám í háskóla.
„Ég átti enga vini í skiptináminu þannig að ég fór einn í öll ferðalögin mín og ég byrjaði að birta myndskeið um bakpokaferðalögin mín á TikTok,“ segir hann.
Í dag sé það orðið fullt starf sem sé „frekar klikkað“. Hann segir það ekkert trufla sig að vera alltaf einn á ferð og sé það í raun eina sem hann þekkir. Gabe rifjar upp ferðalag með kærustunni sinni og segist hann aldrei hafa verið jafn stressaður.
„Ég fann að ég var svo miklu stressaðri yfir lestunum, tímasetningu, máltíðunum og öllu. Þegar ég er á bakpokaferðalagi sef ég í svona fjóra tíma á sólarhring. Hádegismaturinn minn er brauð og skinka úr matvöruversluninni og ég borða sitjandi á gangstéttarbrún. Ég gisti á farfuglaheimili með mjög léleg lífsgæði en það er það sem ég er vanur þegar ég ferðast.“
Svo tíð ferðalög hafi einnig opnað augu hans fyrir ýmsu.
„Ég held að því meira sem ég ferðast því betur átta ég mig á því að flestir staðir eru ótrúlega líkir á sinn hátt. Sama hvar í heiminum maður er, ef maður er almennilegur og spenntur fyrir því að upplifa staðinn þá tekur fólk manni opnum örmum og maður getur átt frábæran tíma eiginlega hvar sem er.“
Vill sjá allt
Aðspurður hvort það sé einhver sérstakur staður á Íslandi sem hann langi að heimsækja næst nefnir hann Vestmannaeyjar og Vestfirði. Eftir örlítinn umhugsunarfrest nefnir hann einnig Austfirði þar sem The Secret Life of Walter Mitty var meðal annars tekin upp.
„Þannig eiginlega alls staðar. Mig langar að sjá alla hluta landsins,“ segir hann og hlær.
Svo spyr hann hvort það sé „eitthvað í miðjunni“ sem sé þess virði að sjá. Það má því gera ráð fyrir því að Gabe muni leggja leið sína aftur til Íslands og deila myndskeiðunum með heiminum.