Garðplöntustöðin Nátthagi í Ölfusi er í eigu Ólafs Sturlu Njálssonar. Hann ræktar fjölbreyttar tegundir af trjám og runnum með góðum árangri og svo er hann líka með mikið úrval af alls konar eplatrjám sem hann hefur gróðursett í landið hjá sér.
„Ég bjóst ekki við því að það myndi ganga svona vel en nú eru komin fimmtán ár í þessum reit sem við stöndum í hér. Hér voru gróðursettar um 120 eplasortir og allar komu þær frá Finnlandi,” segir Ólafur.
En hverjum hefði dottið í hug að það væri hægt að rækta epli á Íslandi og hvað þá úti?
„Veistu það, þegar ég kenndi í Garðyrkjuskólanum 1985 til 1994 þá sleppti ég því algjörlega að fjalla um ávaxtatrjáræktun á Íslandi því ég taldi að hún myndi ekki ganga neitt sérstaklega vel,” segir Ólafur hlæjandi.
Hann segir að upp úr 1996 hafi Sæmundur Guðmundsson á Hellu byrjað að planta eplatrjám í garðinn sinn og eftir það hafi áhugi á eplaræktun aukist mikið víða um land.
Og hvað gerir þú við eplin, eplauppskeruna?
„Ég geri ekki neitt, ég leyfi fuglunum að fá þau,” segir Ólafur.
Og í öðrum reit hjá Ólafi hefur hann plantað 230 eplatrjám í viðbót þannig að hann er sannkallaður eplabóndi.
Þetta að lokum frá Ólafi.
„Haldið áfram að rækta eplatré á Íslandi, perutré, plómutré og kirsuberjatré. Eplatrén eru einna öruggust af þessu af því að þau þola betur við, sérstaklega á vorin, þau lifna ekki við of snemma á vorin.”