Leysti eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar með hjálp gervigreindar

Leysti eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar með hjálp gervigreindar

Leysti eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar með hjálp gervigreindar

Stærðfræðingur á vegum gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist hafa leyst eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar, Riemann-tilgátuna, með hjálp gervigreindar. Stærðfræðingar víða um heim yfirfara lausnina til að ganga úr skugga um hvort hún sé raunverulega í höfn.

Nýdoktor í stærðfræði telur að fræðigreinin sé að breytast mjög mikið eftir því sem gervigreindin verður betri í að sanna niðurstöður eða uppgötva nýja stærðfræði.

Óleyst í tæplega 170 ár

„Riemann-tilgátan hefur í mjög langan tíma verið eitt frægasta, óleysta verkefnið í stærðfræði,“ segir Dagur Tómas Ásgeirsson, nýdoktor í stærðfræði við Háskólann í Alberta í Kanada. Þetta sé stærsta frétt af vettvangi stærðfræðinnar í áratugi.

Riemann-tilgátan er kennd við þýska stærðfræðinginn Georg Friedrich Bernhard Riemann sem var uppi á 19. öld. Riemann lagði tilgátuna fram árið 1859, fyrir rétt tæplega 170 árum. Síðan þá hefur hún verið óleyst.

Tilgátan er eitt af sjö þúsaldarvandamálunum sem eru einhver flóknustu óleystu viðfangsefni stærðfræðinnar.

Riemann-tilgátan snýst um hvort hægt geti verið að spá fyrir um dreifingu frumtalna út í hið óendanlega. Hún segir til um núllstöðvar ákveðins falls.

„Fall í stærðfræði er svona formúla, þar sem þú getur stungið inn tölu fyrir x og fengið út aðra tölu. Núllstöðvar eru þær tölur x sem gefa útkomuna 0.“

Fallið sem tilgátan fjallar um er kallað zeta-fall Riemanns. „Tilgátan segir að allar núllstöðvar nema neikvæðu heiltölurnar liggi á tiltekinni línu í tvinntalnasléttunni.“

Dagur útskýrir þetta aðeins betur: „Flestir hugsa um tölur á talnalínu sem teygir sig út í hið óendanlega, til vinstri og hægri, þar sem neikvæðu tölurnar eru til vinstri og jákvæðu tölurnar eru til hægri. Með tvinntölum bætir þú við annarri vídd. Þá eru tölur fyrir ofan og neðan talnalínuna.“

Tilgáta Riemanns segir að núllstöðvar zeta-fallsins liggi allar á ákveðinni lóðréttri línu í þessari sléttu.

„En það merkilega við þessa tilgátu eru afleiðingarnar sem hún hefur í talnafræði. Hún hefur í för með sér nákvæmar niðurstöður varðandi dreifingu frumtalnanna. Hún gefur okkur miklu nákvæmara mat á skekkjunni í þekktum nálgunum á fjölda frumtalnanna fyrir neðan gefna rauntölu.“

Dagur segir að hægt sé að hugsa sér að frumtölur séu byggingarblokkir náttúrulegu talnanna. „Það er klassísk niðurstaða að hverja einustu náttúrulegu tölu má skrifa á nákvæmlega einn hátt, sem margfeldi af frumtölu.“

Frumtölur eru aðalviðfangsefni talnafræði sem er heil grein innan stærðfræðinnar.

„Gervigreindin skrifaði kóðann en hann stendur fyrir sig“

Stærðfræðingurinn Levent Alpöge, sem vinnur hjá tæknirisanum Anthropic, greindi frá því á föstudag að hann hefði sannað tilgátuna með gervigreindarforritinu Claude. Sú útgáfa sem hann notaði er ekki aðgengileg almenningi.

„Við Claude höfum átt afar ánægjulegt samstarf og unnið saman að fjölbreyttum verkefnum undanfarna mánuði. Í þetta skiptið hafði Claude hins vegar algjöra yfirburði undir lokin. Hann flaug í mark,“ sagði Alpöge.

Dagur segir Alpöge hafa sent frá sér sönnunina á formi tölvukóða í forritunarmáli sem heitir Lean. Tölvukóðinn var 17 milljón línur.

„Þetta forritunarmál er notað til að skrifa stærðfræðisannanir. Þetta er tölvuforrit sem sannprófar að hvert skref í sönnuninni sé rétt.“

Degi finnst mikilvægt að benda á að forritunarmálið Lean er hefðbundið tölvuforrit, ekki gervigreind.

„Þetta er ekki sönnun sem er skrifuð af gervigreind og yfirfarin af gervigreind. Lean er bara hefðbundið tölvuforrit. Það er mikilvægt að átta sig á muninum á þessu. Forrit gerir bara alltaf það sem það er forritað til að gera en gervigreind hegðar sér samkvæmt einhverjum líkindareikningi í grunninn. Þannig að þú veist aldrei fyrir fram hvað hún gerir.“

Hann myndi ekki treysta ferlinu ef gervigreind hefði skrifað sönnunina, farið yfir hana og gengið úr skugga um að hún hafi verið rétt.

„Gervigreindin skrifaði kóðann en það er í forritunarmáli sem hefur í raun ekkert með gervigreind að gera. Gervigreindin skrifaði kóðann en hann stendur bara fyrir sig.“

Risastórt rannsóknarviðfangsefni að stúdera nýja stærðfræði

Sérfræðingar víða um heim yfirfara nú lausnina til að ganga úr skugga um hvort hún sé raunverulega í höfn.

Dagur segist geta fullyrt að sönnunin sé rétt, jafnvel þó að aðeins tveir sólarhringar séu liðnir frá því að Aplöge birti hana.

Magn tölvukóðans samsvarar um það bil 250 þúsund blaðsíðum af hefðbundnum stærðfræðitexta. Því sé útilokað að nokkur maður eða hópur hafi náð að lesa og byggja upp djúpan skilning á sönnuninni.

„En um leið og þessi kóði var birtur fór hópur af sérfræðingum í forritunarmálinu Lean að keyra kóðann og keyra hann í gegnum frekari sannprófanir. Þetta virkar bara þannig að ef það tekst að keyra kóðann án villna þýðir það að allar sannanirnar séu réttar.“

Einnig þarf að athuga hvort fullyrðingarnar sem er verið að sanna séu rétt settar fram og að svindl eigi sér ekki stað.

Dagur segir Lean-samfélagið hafa verið útsjónarsamt undanfarin ár, séð þessa þróun fyrir að einhverju leyti og byggt innviði sem gera sérfræðingum kleift að framkvæma aukasannprófanir á stuttum tíma og sjálfvirkt.

„Þannig að það er enginn maður að lesa þessar 17 milljónir lína af kóða til að vita að hann sé réttur. Þetta er auðvitað mjög ólíkt því hefðbundna ferli sem hefði farið af stað í stærðfræðiheiminum ef svona stór sönnun hefði verið byggð af mennskum stærðfræðingi. Það hefði tekið marga menn mörg ár að fara í gegnum allt saman og athuga hvort allt væri rétt.“

Gott sé fyrir stærðfræðisamfélagið að vita fyrir fram að sönnunin sé rétt.

„Núna er það bara risastórt rannsóknarviðfangsefni að stúdera alla þessa nýju stærðfræði sem gervigreindin í rauninni bjó til. Við vitum fyrir fram að hún er rétt.“

Dagur segir þá til sem séu ósammála honum og séu alfarið á móti því að nota gervigreind í stærðfræði.

„Auðvitað er það ákveðin tilvistarkreppa þegar gervigreind er orðin miklu betri en menn í þeim hluta stærðfræðinnar sem snýr að því að sanna nýjar niðurstöður eða uppgötva nýja stærðfræði en það er auðvitað mikilvægur hluti stærðfræðinnar líka að skilja. Ég allavega í mínum rannsóknum fæ mikið út úr því og ég held að fræðigreinin sé bara að fara að breytast mjög mikið í þá átt.“

Þannig að þetta er framtíðin?

„Já.“

Fréttin hefur verið uppfærð. Orðalag var skýrt betur.

#eitt #leysti #stærsta #stærðfræðinnar #verkefni

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-11-22-leysti-eitt-staersta-verkefni-staerdfraedinnar-med-hjalp-gervigreindar-493500

📰 Aðrar fréttir

Söngleikur um George Floyd hneykslar - „Aldrei á að dæma sýningu eftir titlinum“
📅 23.11.2026 👁️ 1
Söngleikur um George Floyd hneykslar - „Aldrei á að dæma sýningu eftir titlinum“
Söngleikur um morðið á George Floyd hefur fengið dræmar viðtökur og svo virðist sem hann muni aldrei verða sýndur. Fyrirtækið sem ætlaði að sýna verki...
Komi á versta tíma fyrir kaup­menn landsins - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Komi á versta tíma fyrir kaup­menn landsins - Vísir
„Ég held því miður að þetta gæti orðið nokkuð tíður gestur. Þessi árás sýnir okkur í rauninni að hvaða fyrirtæki sem er getur lent í þessu. Við þurfum...
Þrír her­menn frá El Salvador dóu á Haítí - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Þrír her­menn frá El Salvador dóu á Haítí - Vísir
Í lok síðasta mánaðar bárust fregnir af því að Bukele hefði sent um þúsund hermenn til Haítí í flýti. Það var eftir að fjórir menn frá El Salvador sem...
Gisele Pelicot hótar lögsókn vegna birtingar nektarmynda
📅 23.11.2026 👁️ 1
Gisele Pelicot hótar lögsókn vegna birtingar nektarmynda
Gisele Pelicot hefur hótað því að lögsækja franska útgefandann Tinbad fyrir að hafa notað nektarmyndir og myndbönd af henni til þess að kynna bók sálg...
US to blacklist Asian AI firm Megaspeed after Nvidia scandal
📅 23.11.2026 👁️ 1
US to blacklist Asian AI firm Megaspeed after Nvidia scandal
Megaspeed has been accused of funneling AI chips to China after a former executive's affair with Jensen Huang became public.
Stórleikari segist eiga Karli konungi mikið að þakka - „Ég er mjög stoltur af þér“
📅 23.11.2026 👁️ 2
Stórleikari segist eiga Karli konungi mikið að þakka - „Ég er mjög stoltur af þér“
Einn af þekktustu leikurum Breta Idris Elba hefur greint frá því að styrkur frá góðgerðarsjóði, sem Karl Bretakonungur hefur haldið úti í hálfa öld, h...
Catherine talks about mortality and cancer in new documentary clip
📅 23.11.2026 👁️ 1
Catherine talks about mortality and cancer in new documentary clip
The Princess of Wales talks about her cancer journey in a new clip from the upcoming BBC documentary, Heal.
Útlendingar á Íslandi afar ósáttir við frumvarp Þorbjargar - Ótækt sé að breyta reglunum eftir á
📅 23.11.2026 👁️ 3
Útlendingar á Íslandi afar ósáttir við frumvarp Þorbjargar - Ótækt sé að breyta reglunum eftir á
Þegar hafa verið fram lagðar fram á þriðja tug umsagna um frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til breytinga á lögum um útlen...
„Við erum ekki með börn í forgangi“
📅 23.11.2026 👁️ 3
„Við erum ekki með börn í forgangi“
„Við erum ekki með börn í forgangi. Við erum ekki með börn sem eru í vanda í forgangi,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.Hann segir s...
Gisèle Pelicot 'humiliated' after nude photos sent to media to promote book
📅 23.11.2026 👁️ 3
Gisèle Pelicot 'humiliated' after nude photos sent to media to promote book
The publisher of an essay on coercive control apologises for "an unfortunate and inappropriate communication".
Landsréttur vísar frá kæru slökkviliðsins á niðurstöðu héraðsdóms
📅 23.11.2026 👁️ 3
Landsréttur vísar frá kæru slökkviliðsins á niðurstöðu héraðsdóms
Landsréttur hefur vísað frá kæru Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um aðgang að íbúðarhúsnæði í Reykjavík til eldvarn...
UK sanctions top Myanmar military leaders after Rohingya genocide ruling
📅 23.11.2026 👁️ 3
UK sanctions top Myanmar military leaders after Rohingya genocide ruling
The UK is joined by several other nations in recognising an ICJ ruling that Myanmar carried out genocide.
Erfitt fyrir neytendur að átta sig á verðinu
📅 23.11.2026 👁️ 2
Erfitt fyrir neytendur að átta sig á verðinu
Samkeppniseftirlitið hefur kallað eftir gögnum frá olíufélögum til að meta hvort verðlækkanir úti í heimi hafi skilað sér til íslenskra neytenda.Heims...
Hálf milljón Rússa hafi fallið - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Hálf milljón Rússa hafi fallið - Vísir
Rússnesk stjórnvöld hafa ekki uppfært opinbera tölu um fallna síðan í september 2022, þegar þau sögðu 5.937 hermenn hafa fallið. Greiningin byggir á m...
Stóra fjársvikamálið: Ástríður játaði sök – Ákæruvaldið fer fram á þriggja ára fangelsi
📅 23.11.2026 👁️ 4
Stóra fjársvikamálið: Ástríður játaði sök – Ákæruvaldið fer fram á þriggja ára fangelsi
Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjaness í máli Ástríðar Kristínar Bjarnadóttur sem ákærð er fyrir fjársvik og þjófnaði gagnvart 13 karlmönnum á fi...
What strike on Russian ship in Libya says about spread of Ukraine war
📅 23.11.2026 👁️ 4
What strike on Russian ship in Libya says about spread of Ukraine war
Ukraine's sinking of a Russian battleship at a port in Libya raises the stakes of the war a notch, writes Frank Gardner.
Einn og hálfur milljarður króna í stuðning við brothættar byggðir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Einn og hálfur milljarður króna í stuðning við brothættar byggðir
Verkefnið Brothættar byggðir hófst á Raufarhöfn árið 2012. Þar voru þá miklir erfiðleikar, íbúum hafði fækkað um 46% á tólf árum, allur kvóti var horf...
Guterres vonsvikinn yfir niðurstöðu COP31
📅 23.11.2026 👁️ 3
Guterres vonsvikinn yfir niðurstöðu COP31
Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi átti að ljúka á föstudag en lauk ekki fyrr en í gær vegna þrefs um texta lokasamþykktar. Olíuframlei...
Vildi segja sögu sína í von um hjálp
📅 23.11.2026 👁️ 3
Vildi segja sögu sína í von um hjálp
Ungur maður féll fyrir eigin hendi síðastliðið sumar. Hann glímdi við alvarlegar geðrænar áskoranir og flakkaði árum saman milli búsetuúrræða og stofn...
Hvað veistu um… gömlu úti­hátíðirnar? - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 5
Hvað veistu um… gömlu úti­hátíðirnar? - Vísir
Hátíðir á borð við Atlavíkurhátíð, Húnaver, Uxa og hátíðirnar í Vestmannaeyjum drógu að sér fólk á öllum aldri og urðu vettvangur ótal minninga, kynna...
Sjóð­heitt spila­kvöld hjá stjörnunum - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 4
Sjóð­heitt spila­kvöld hjá stjörnunum - Vísir
Patrekur og Gugga eru meðal þekktustu áhrifavalda landsins, stýra hlaðvarpinu Tvöfalt tjón og eru bæði tvö miklir leikjaunnendur. Athygli vakti að Gug...
Gunnar Smári sagði Runólfi hvað læknir sagði við hann í sumar: „Það er ekki viðeigandi“
📅 23.11.2026 👁️ 3
Gunnar Smári sagði Runólfi hvað læknir sagði við hann í sumar: „Það er ekki viðeigandi“
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir að Íslendingum hafi mistekist að þróa biðlista eftir heilbrigðisþjónustu, þeir séu í dag óáreiðanlegir, á...
Páll Ásgeir hneykslaður á héraðsdómi fyrir að neita að birta dóm yfir barnaperra - „Þessi niðurstaða getur ekki staðist“
📅 23.11.2026 👁️ 4
Páll Ásgeir hneykslaður á héraðsdómi fyrir að neita að birta dóm yfir barnaperra - „Þessi niðurstaða getur ekki staðist“
Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, segir dómstóla sína svívirðilega framkomu gagnvart þolendum barnaníðs með því að neita að birta d...
Kröfðust að­gangs og lýstu yfir veru­legum á­hyggjum af sam­setningu í­búa - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 3
Kröfðust að­gangs og lýstu yfir veru­legum á­hyggjum af sam­setningu í­búa - Vísir
Að sögn slökkviliðsins voru 25 manns með skráð lögheimili í fasteigninni og taldi það jafnframt að meirihluti þeirra væri af erlendum uppruna. Var þes...
Lýstu yfir veru­legum á­hyggjum af sam­setningu í­búa - Vísir

Andrew received £750,000 from Turkish millionaire, court told
📅 23.11.2026 👁️ 2
Andrew received £750,000 from Turkish millionaire, court told
The former Duke of York is expected to give evidence in the complex court case next month.
Kemur kannski aldrei í ljós hver stóð að baki árásinni
📅 23.11.2026 👁️ 3
Kemur kannski aldrei í ljós hver stóð að baki árásinni
Framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984 vonar að starfsemi verði komin í samt lag í síðasta lagi á miðvikudag. Hann vill ekki fullyrða að Ísrae...
Hlaða kubbaturn frá gólfi og upp í loft - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 5
Hlaða kubbaturn frá gólfi og upp í loft - Vísir
Við upptökur á þættinum Um land allt í grunnskólanum ákvað myndatökumaðurinn Egill Aðalsteinsson að fylgjast með því hvort þeim tækist ætlunarverkið. ...
ESB setti írskan RT-fréttamann á þvingunarlista
📅 23.11.2026 👁️ 3
ESB setti írskan RT-fréttamann á þvingunarlista
Ráðherraráð Evrópusambandsins setti írska fréttamanninn Chay Bowes á þvingunarlista þann 16. nóvember. Bowes starfar sem fréttamaður hjá rússneska rík...
Yfir þúsund frávik í brunavörnum í mannvirkjum þar sem fólk er lokað inni
📅 23.11.2026 👁️ 4
Yfir þúsund frávik í brunavörnum í mannvirkjum þar sem fólk er lokað inni
Eftir að skýrsla um mannskæðan eldsvoða á Stuðlum kom út fundust yfir þúsund frávik við úttekt á brunavörnum í öðrum mannvirkjum ríkisins þar sem fólk...
Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 4
Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir
Fálki er útbreiddur en sjaldgæfur varpfugl á Íslandi. Rjúpa er hans mikilvægasta bráð og lengi vel réðst staða fálkastofnsins af rjúpnastofninum. Það ...
Aðför gegn kristni
📅 23.11.2026 👁️ 4
Aðför gegn kristni
Aðför gegn kristni Fréttin23. nóvember 2026Erlent, Innlent, TrúmálLeave a Comment Eftir Árna Má Jensson: Árni Már Jensson fjallar í greininni um ofsók...
Óhugsandi að Bretar gangi aftur í ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu
📅 23.11.2026 👁️ 3
Óhugsandi að Bretar gangi aftur í ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir það óhugsandi að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið án þess að þjóðin greiði um það atkvæði. Burnh...
Náttúruminjasafn sameinað Náttúrufræðistofnun vegna fjárskorts
📅 23.11.2026 👁️ 3
Náttúruminjasafn sameinað Náttúrufræðistofnun vegna fjárskorts
Bág fjárhagsstaða Náttúruminjasafns Íslands virðist ein helsta forsenda vilja stjórnvalda til sameiningar þess og Náttúrufræðistofnunar. Áform um laga...
Iranian authorities flog singer who performed without hijab, lawyers say
📅 23.11.2026 👁️ 2
Iranian authorities flog singer who performed without hijab, lawyers say
Parastoo Ahmadi, three musicians and a producer were reportedly given 74 lashes in Qom.
Þorgerður Katrín: Aðild að ESB ekki sjálfstætt markmið – tæki til að efla hag almennings
📅 23.11.2026 👁️ 3
Þorgerður Katrín: Aðild að ESB ekki sjálfstætt markmið – tæki til að efla hag almennings
Kappið ber fegurðina ofurliði hjá stjórnarandstöðunni og gjarnan virðist vera kapphlaup milli Miðflokks- og Sjálfstæðismanna um það hver geti verið me...
„Pabbi, hvað gerðir þú í dag? Ég drap sautján menn, nauðgaði sex konum og rændi fimm bílum, en þú, elskan mín?“
📅 23.11.2026 👁️ 3
„Pabbi, hvað gerðir þú í dag? Ég drap sautján menn, nauðgaði sex konum og rændi fimm bílum, en þú, elskan mín?“
Sverrir Björnsson, hönnuður, veltir því fyrir sér hvers vegna hundruð milljóna heimilisfeðra hafi tekið sé frí frá vinnu í síðustu viku til þess að sp...
Arnarvarp ársins í meðallagi
📅 23.11.2026 👁️ 4
Arnarvarp ársins í meðallagi
Náttúrufræðistofnun telur arnarvarp sumarsins 2026 vera í meðallagi samanborið við fyrri ár. Alls verptu 61 par en aðeins 41 kom ungum á legg, 58 tals...
Telja Evrópubúa hafa borgað of mikið fyrir gosið vegna ólöglegra viðskiptahátta
📅 23.11.2026 👁️ 3
Telja Evrópubúa hafa borgað of mikið fyrir gosið vegna ólöglegra viðskiptahátta
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf í dag rannsókn á Coca-Cola Europacific Partners (CCEP). Grunur leikur á að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráða...
Víðförull Grikki fékk 9 ára fangelsi fyrir að smygla 43 kílóum af kókaíni
📅 23.11.2026 👁️ 3
Víðförull Grikki fékk 9 ára fangelsi fyrir að smygla 43 kílóum af kókaíni
Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur hlotið níu ára fangelsi fyrir að smygla tæpum 43 kg af kókaíni í Renault Trafic-bifreið ...
What failure of COP31 reveals about a divided world
📅 23.11.2026 👁️ 2
What failure of COP31 reveals about a divided world
Interests of oil-producing countries, a US boycott and a dispute over finance may have torpedoed climate talks.
María og Margrét Kristín metnar hæfastar
📅 23.11.2026 👁️ 2
María og Margrét Kristín metnar hæfastar
Þær María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, teljast hæfastar...
Comedian impersonates Trump's dance moves, mocks trade talks at Canada press dinner
📅 23.11.2026 👁️ 4
Comedian impersonates Trump's dance moves, mocks trade talks at Canada press dinner
The impersonator, Canadian comedian Mark Critch, poked fun at the US president's search for a new press secretary and US-Canada trade talks.
Draumurinn rættist og Sigga klæddist kjól af mömmu sinni
📅 23.11.2026 👁️ 3
Draumurinn rættist og Sigga klæddist kjól af mömmu sinni
Fegurðardrottningin og söngkonan Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ózk, var glæsileg á fyrra undanúrslitakvöldi Ungfrú alheims í gær...
Börn fædd á Íslandi fá ekki vegabréf - Hvergi með skráð ríkisfang
📅 23.11.2026 👁️ 3
Börn fædd á Íslandi fá ekki vegabréf - Hvergi með skráð ríkisfang
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn tveggja barna sem fædd eru á hér á landi og eru systkini um ve...
Patreksfirðingur sleppur með skrekkinn - Gaf grunlausum vini sínum kannabisköku
📅 23.11.2026 👁️ 3
Patreksfirðingur sleppur með skrekkinn - Gaf grunlausum vini sínum kannabisköku
Maður sem er íbúi á Patreksfirði hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða ef ákæru um að hafa stofnað heilsu vinar síns í augljósan háska. Gaf mað...
Rússar sagðir undirbúa að senda kjarnorkuvopn út í geim fyrir áramót – Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar
📅 23.11.2026 👁️ 5
Rússar sagðir undirbúa að senda kjarnorkuvopn út í geim fyrir áramót – Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar
Rússar eru sagðir undirbúa að senda gervihnött búinn kjarnorkuvopni á braut um jörðu áður en árið er á enda. Vestrænar leyniþjónustustofnanir telja að...
Nvidia reinstates CEO Jensen Huang after Trump says he 'made' the deal
📅 23.11.2026 👁️ 1
Nvidia reinstates CEO Jensen Huang after Trump says he 'made' the deal
Nvidia had come under pressure from President Trump to reappoint Huang, whose comeback helped add $1tn to the company's stock value.
Pedro Sánchez announces €1.4 billion housing pledge during visit to Tenerife
📅 23.11.2026 👁️ 4
Pedro Sánchez announces €1.4 billion housing pledge during visit to Tenerife
Spain's Prime Minister, Pedro Sánchez, has announced plans to raise €1.4 billion from a tax on banks to tackle the housing crisis, during a weekend el...
Háskóli Íslands og Keflavíkurflugvöllur á meðal þeirra sem bárust sprengjuhótanir
📅 23.11.2026 👁️ 3
Háskóli Íslands og Keflavíkurflugvöllur á meðal þeirra sem bárust sprengjuhótanir
Háskóla Íslands og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Lögregla greindi frá því í dag eftir fyrirspurn fréttastofu að ým...