Að sögn nágranna hafði pallurinn verið við húsið í dágóðan tíma. Hann kom að brakinu snemma í morgun og lét nágranna sinn vita sem brást, að hans sögn, snöggur við og tók til.
Pallsbrakið var fjarlægt af göngustígnum seinna í morgun. Á götumynd sést hvernig stillansinn lá við húsið áður en hann fauk. Hún er tekin um sumar á síðasta ári.