Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum til Keflavíkur, rétt fyrir lok árs 2023, starfar sem taugasálfræðingur í Florida í Bandaríkjunum, en er fæddur á Íslandi og ber íslenskt nafn. Hann er rúmlega sextugur að aldri. Maðurinn hefur neitað sök en samkvæmt heimildum DV upplifðu farþegar og starfsfólk mikla ógn af framferði hans í flugvélinni. „Hann hreinlega bilaðist,“ segir einn farþegi úr þessu flugi og segir að ákærði hafi verið mjög drukkinn.
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing