Nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvik var formlega opnað í dag. Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf, og er með aðstöðu fyrir sprotafyrirtæki, aðila sem starfa að rannsóknum og alþjóðasamstarfi sem og þjónustufyrirtæki sem tengjast slíkri starfsemi.
Þá verða viðburðir, þar sem fjallað verður um fjárfestingar, nýsköpun, þróun norðurslóða og önnur málefni, einnig haldnir í setrinu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, og Fanney Kristín Hermannsdóttir, eiginkona hans, opnuðu setrið. Opnunin er hluti af fordagskrá Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, sem hefst formlega á fimmtudag.
Fyrirtækið Arctell ehf., sem vinnur að fjárfestingum og nýsköpun á norðurslóðum, stendur að baki setrinu. Félagið er í eigu Guðmundar Fertram og Fanneyjar Kristínar, ásamt samstarfsfólki.
Markmiðið er að tengja saman frumkvöðla, vísindamenn og fjárfesta, efla alþjóðlegt samstarf og styðja við uppbyggingu fyrirtækja sem geta vaxið á alþjóðlegum mörkuðum.
Þetta er annað nýsköpunar- og þekkingarsetur Arctell, en það fyrsta var opnað í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Fyrirhugað er að opna fleiri slík setur, meðal annars á Ísafirði og í Nuuk á Grænlandi.
Guðmundur Fertram segir mikil tækifæri til vaxtar og nýsköpunar á norðurslóðum.
„Með því að tengja frumkvöðla og vísindamenn í fremstu röð, þekkingu heimafólks, fjármagn, samstarfsaðila og alþjóðleg tengslanet getum við fangað þessi tækifæri og byggt upp öflug fyrirtæki sem nýta sérstöðu norðurslóða og skapa verðmæti til framtíðar,“ er haft eftir honum í tilkynningu.
Guðmundur Fertram er þekktastur fyrir að stofna fyrirtækið Kerecis. Það þróaði tækni til vefjaviðgerðar úr fiskroði á Vestfjörðum og varð fyrsta íslenska sprotafyrirtækið sem náði stöðu svokallaðs einhyrnings, þegar danska lækningavörufyrirtækið Coloplast keypti félagið árið 2023.
Guðmundur Fertram starfar sem ráðgjafi Coloplast á sviði nýsköpunar og tækni og er jafnframt sérstakur fulltrúi Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, á sviði fjárfestinga og atvinnulífs.