Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum,
Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að styrkja íslenskt skólastarf til framtíðar.
Kennarasamband Íslands vill hefja vinnu við að leggja grunn að menntastefnu til ársins 2036. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sagði að kallað væri eftir víðtæku samtali við alla sem koma að skólum landsins, á öllum skólastigum.
Í tillögum KÍ er meðal annars áhersla á að efla læsi, lesskilning og námsgagnagerð, fjölbreyttar námsleiðir og öfluga kennarastétt. Sambandið hyggst ekki koma með öll svörin að borðinu. Í stað skyndilausna þurfi skýra langtímasýn.
Birta tölfræði til að skýra raunverulega stöðu
Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir örar breytingar innan skólakerfisins kalla á viðbrögð. Tölfræði um skólakerfið sýni að ekki sé nóg að horfa á meðaltöl heldur þurfi til að mynda að skoða aðstæður í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Kostnaður við hvern nemenda er til að mynda mun meiri á hvern nemenda í fámennari grunnskólum en þeim stærri.
Örar breytingar kalli á viðbrögð
Ýmsar hindranir séu í menntamálum og nauðsynlegt að móta stefnu til framtíðar. „Við búum við gríðarlegan kennaraskort á öllum skólastigum og við erum líka með gjörbreytt samfélag,“ segir Mjöll.
„Við sýndum til að mynda tölur um þennan stóraukna fjölda nemenda með erlendan bakgrunn, sem til dæmis gerir verkefnin öðruvísi í skólunum. Það kallar á fagfólk og kallar á starfsþróun fyrir fagfólkið, og við höfum kannski ekki náð að halda í við þessar öru breytingar,“ segir hún.
Umræðan megi ekki vera í upphrópunarstíl
Harkaleg umræða um skólakerfið sýni að allir þurfi að taka höndum saman og móta stefnu til framtíðar. „Við erum að kalla eftir samfélagslegu samtali um skólamál, ekki í upphrópunarstíl og það sé endalaust verið að benda á eitthvað sem þurfi að gera með öðrum hætti að betur megi fara,“ segir hún.
Allir þurfi að koma að borðinu. „Bara samfélagið. Hvort sem það er almenningur, skólafólk sveitarstjórnarfólk, og stjórnmálamenn, sem bara setjist niður og ræði þessi mál og mótum hvert viljum við stefna,“ segir Mjöll.