Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.
„Hann er þjófóttur kisi. Honum finnst mjög gaman að fara í þvottahús í hverfinu og stela sokkum, stela nærfötum. Alls konar litlum hlutum sem hann finnur og er góð lykt af,“ segir Freyja Kristinsdóttir eigandi Dreka.
„Svo finnst honum ægilega gaman að fara í fjöruna. Þar tínir hann prik og steina og allskyns rusl. Hann er ruslasafnari, hann er svona „hoarder“.“
Byrjaði smátt og færði sig svo upp á skaftið
Í byrjun var þjófnaður Dreka smár í sniðum. „Hann byrjaði að koma inn um gluggann með strá í munninum og allskonar lítið. Svo varð það stærra og stærra. Ég kom einhverntímann heim, hérna inn um hurðina, og sé lögregluteip liggja meðfram gólfinu. Ég var alveg: hvað er þetta? Þetta var 4-5 metra langt, nær í gegnum alla íbúðina út um gluggann og út á lóðina.“
En það versta var nú þegar hann kom með notaðan smokk. Það var ekki mjög vinsælt. Og hann hefur líka komið með brotna maríjúanapípu.
Dreki kemur heim með illa fengið góss að minnsta kosti annan hvern dag og sokkar, nærföt og ýmsir smámunir hafa safnast fyrir á heimili Freyju.
Fyrir skömmu greip hún til þess ráðs að auglýsa í Facebookhópi Vesturbæinga eftir eigendunum og viðbrögðin létu ekki á sér standa og þegar hefur fólk haft samband og sótt eigur sínar.
Fóstbróðirinn Eysteinn liggur undir grun
Á heimilinu býr líka kötturinn Eysteinn, sá er eldri og ráðsettari og hefur ekki orðið uppvís að þjófnaði.
En Freyju grunar þó að hann leggi fóstbróður sínum lið við gripdeildirnar. „Það er náttúrlega mögulegt að hann standi á verði,“ segir hún.
Ætti að vera á launum hjá borginni
Hnupl Dreka hefur líka sína kosti, því hann fer um Vesturbæinn og hirðir plast og annað rusl. „Hann ætti kannski bara að vera á launum hjá Reykjavíkurborg,“ segir Freyja.