Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til að mynda sérstaka kletta fyrir vísindamenn hér á jörðinni.
Myndin var tekin um klukkan 8:30 að staðartíma á Mars, þann 11. ágúst. Það var 4.982. dagurinn sem Curiosity hafði verið á yfirborði plánetunnar. Hún er unnin úr sex myndum sem farið tók en reynt var að halda birtustigi myndarinnar eins og aðstæður hafa verið á Mars.
Myndin sem fylgir fréttinni er hluti af stærri samsettri mynd sem áhugasamir geta séð hér á vef NASA. Þá er einnig hægt að sjá allar myndir sem teknar eru með Curiosity hér.
📍Gale Crater, Aug. 11, 2026, 8:30 a.m. local Mars time. The Curiosity rover captures the Sun rising on crags known as yardangs, a scene that scientists have long been waiting to see up close. 1/2 https://t.co/NJQH9yNEYR
— NASA Mars (@NASAMars) October 6, 2026
Á vef NASA segir að myndin sé af tindagarði sem mótast hefur með veðrun í gegnum árin. Garðar sem þessir myndast þegar vindur blæs burt mýkra efni svo það eina sem stendur eftir eru klettahryggir.
Þessir tilteknu klettar liggja í vesturhluta Sharp-fjalls en það er um fimm kílómetra hátt fjall sem Curiosity hefur verið að klífa frá árinu 2014. Farið er komið í eins kílómetra hæð og er vonast til þess að Curiosity nái til tindagarðsins árið 2027.
Fjallið er mótað úr mörgum lögum af jarðvegi en með því að skoða þau lög hafa vísindamenn NASA getað lært meira um þau stöðuvötn og ár sem flæddu eitt sinn um yfirborð Mars, fyrir milljörðum ára.