Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem minntu á upphaf stríðsins.
Um 1200 voru myrt í hryðjuverkaárás Hamas 7. október 2023 og 251 tekin höndum, af þeim komust aðeins 168 lífs af. Kfar Aza er eitt þorpanna sem Hamas-liðar réðust á.
„Ég hef beðið í þrjú ár eftir að einhver komi, standi fyrir framan mig eins og þú og biðjist afsökunar,“ segir Varda Goldstein sem býr í Kfar Aza.
Sjálf var hún erlendis þennan örlagaríka dag fyrir þremur árum en sonur hennar og tvítug dóttir hans voru drepin. Í fimm klukkustundir reyndu þau að biðja um hjálp en enginn kom. „Að endingu voru þau yfirbuguð, skotin til bana af stuttu færi,“ segir Varda.
Í minningarathöfn í Jerúsalem fyrr í vikunni truflaði maður sem missti son sinn ræðu forsætisráðherra og sagði honum að skammast sín. Skipuleggjendur stærstu athafnarinnar í Tel Avív í dag vildu ekki hafa stjórnmálamenn í forgrunni.
Styttist í kosningar í Ísrael
Það styttist í kosningar í Ísrael, þær verða eftir tæpar þrjár vikur og var ríkisstjórninni mótmælt í dag.
„Ég myndi líta á það sem heilun að Netanyahu gæti ekki verið við völd aftur. Margt hefur komið í ljós núna. Hann vissi af árásinni, var varaður við, hann laug, hann hundsaði,“ segir Yehuda Cohen sem er faðir manns sem var í haldi Hamas á Gaza.
Atburðarásinni eftir hryðjuverkaárás Hamas lýsa sífellt fleiri sem þjóðarmorði. Að minnsta kosti 74 þúsund hafa verið drepin og Ísraelsher heldur áfram árásum þrátt fyrir að samið hafið verið um vopnahlé fyrir ári.
Flestir íbúar enn á vergangi
Af þeim tveimur milljónum sem búa á Gaza eru flest enn á vergangi. Í nótt og í morgun minnti herinn rækilega á sig og minnst fjögur voru drepin í árásum.
„Börnin í búðunum vöknuðu við hávaðann í skothríðinni. Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins,“ segir Rami Nofal sem býr tjaldbúðum í Deir al-Balah á Gaza.
Sumayya al-Kurd býr í sömu tjaldbúðum. „Nú er fjórða árið að byrja. Er hugsanlegt að stríðinu ljúki á þessu ári? Er mögulegt að komast undan þessari þriggja ára martröð?“ spyr Sumayya.