Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er að því að reykræsta húsnæðið. Þetta segir varðstjóri slökkviliðsins í samtali við fréttastofu.
Einn var fluttur á slysadeild vegna hugsanlegra einkenna reykeitrunar.
Fréttin hefur verið uppfærð.