Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingum hans en einnig almennum borgurum í ríkinu. Hefur forsetinn verið sakaður um að gefa Íran skotleyfi á tvær borgir í ríki þar sem demókratar ráða ríkjum, sem forsetanum gremjist en hann og ríkisstjóri Kaliforníu hafa löngum eldað grátt silfur. Hafa ummælin verið sögð fela í sér landráð af hálfu forsetans.
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg