Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann er prófessor við Stanford-háskóla auk þess að stýra tengdum stofnunum sem sérhæfa sig í rannsóknum á efnahagslegum áhrifum gervigreindar og innleiðingu hennar. Erik fullyrðir að mannkyn hafi aldrei upplifað jafn hraða þróun nokkurrar tækni eins og gervigreindar og full ástæða sé til að vera á varðbergi gagnvart þessari öru þróun.
Erik Brynjolfsson er af íslenskum ættum, sonur Ara Brynjólfssonar eðlisfræðings frá Akureyri, en Ari hefði orðið 100 ára á þessu ári. Ari ólst upp á Krossanesi við Akureyri, gekk menntaveginn, lærði við Niels Bohr-stofnunina í Danmörku og tók þátt í að senda fyrsta mannaða geimfarið til tunglsins á vegum NASA, bandarísku geimferðastofnunarinnar.
Erik flutti erindi á Aravöku, minningarmálþingi um Ara föður sinn, þann 27. september í Menntaskólanum á Akureyri, þar sem hann fjallaði um innleiðingu gervigreindar á vinnumarkað, efnahagslíf og samfélag. Hann segist bjartsýnn á að hagnýting gervigreindar muni skapa mikinn auð en um leið hafi hann áhyggjur af því að sá auður dreifist ekki nægjanlega víða.
Erik Brynjolfsson fullyrðir vissulega að gervigreindin muni útrýma milljónum starfa en leggur áherslu á að um leið muni hún skapa milljónir nýrra starfa. Mikilvægt sé að einblína ekki á þau störf sem muni hverfa, heldur finna leiðir til að nýta gervigreind þannig að þau störf sem maðurinn vinnur verði í senn mikilvægari og arðbærari. „Gervigreindin býr okkur í hendur öflugri tæki en nokkru sinni fyrr í sögunni. Almenningur getur nýtt þess tækni og breytt heiminum. Það þýðir að við höfum meira vald en foreldrar okkar og foreldrar þeirra,“ segir Erik Brynjolfsson, prófessor við Standford háskóla.