Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á Rás 1 að gera sér að góðu. Um er að ræða dagskrárefni þar sem tekin eru fyrir ákveðin þemu og aðilar sem því tengjast fengnir til að semja og lesa upp pistla því tengdu. Að þessu sinni er þemað Menning og rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl er einn af pistlahöfundunum.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“