Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir endanleg hönnun hússins né hvenær framkvæmdir geti hafist.
Leikskólinn er í dag þriggja deilda leikskóli við Leirulæk og dvelja 45 börn á leikskólanum samtímis samkvæmt vef borgarinnar. Áður voru um hundrað börn á leikskólanum og sex deildir. Leikskólinn hefur verið í húsnæðisvanda um árabil en fyrst stóð til að endurgera húsið sem nú er verið að rífa. Þegar byrjað var að grafa frá húsinu árið 2024 kom í ljós að húsið, sem byggt var árið 1965, stóð ekki á sökklum og jarðvegurinn var sendinn og því ekki hæfur til burðar miðað við þær endurbætur sem áætlaðar voru.
Borgarráð samþykkti svo í desember sama ár að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hætta framkvæmdum og segja upp verksamningi við verktaka um viðgerðir og endurbætur á leikskólanum. Þá var ákveðið að rífa bæði hús leikskólans og byggja nýjan.
Börnin á einum stað
Árin 2024 og 2025 voru börn leikskólans tímabundið á tveimur stöðum, í Safamýri og í öðru húsnæði leikskólans á sama reit, en frá hausti 2025 ár hafa þau einungis verið í öðru húsnæði skólans við Leirulæk, sem iðulega er kallað Lækjarborg eins og leikskólinn sem áður var rekinn þar, og færri börn tekin inn.
Í svari frá Reykjavíkurborg um niðurrifið segir að í samræmi við tillögur um uppbyggingu leikskóla sem samþykktar voru í borgarstjórn í júní 2025 sé gert ráð fyrir að nýr leikskóli rísi á lóðinni.
„Enn er starfsemi í Laugasól-Lækjarborg og því hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um hvort eða hvenær það hús verður rifið,“ segir enn fremur í svarinu.
Hagstæðar markaðsaðstæður
Verktakafyrirtækið H2Orka ehf. sér um niðurrifið en tilboð þess hljóðaði upp á rúmar 25 milljónir. Kostnaðaráætlun Reykjavíkurborgar hljóðaði upp á 71 milljón.
Hvað varðar mun á kostnaðaráætlun og tilboði segir í svari borgarinnar að kostnaðaráætlanir séu unnar á grundvelli upplýsinga sem liggi fyrir á hverjum tíma og feli gjarnan í sér ákveðna varúð.
„Tilboðið sem barst var mun lægra en kostnaðaráætlunin, sem bendir til að markaðsaðstæður hafi verið hagstæðar og samkeppni góð. Einnig má gera ráð fyrir að einstakir kostnaðarliðir í áætluninni hafi reynst of háir miðað við raunverulegt umfang verksins,“ segir í svarinu.