Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina sem gerð var árið 2002. Sagði eigandinn að skipulagsbreytingin hefði verið samþykkt án nokkurs samráðs við hann og í henni hefði falist allan þennan tíma að eigendur næstu lóðar þyrftu að keyra á vegi sem væri á hans lóð til að komast á sína lóð.Samkvæmt deiliskipulaginu, sem er upphaflega frá 1998, eru lóðir á umræddu svæði ætlaðar fyrir frístundabyggð og hrossabeit.
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina