Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að leysa flóknar stærðfræðijöfnur, svokölluð þúsaldarvandamál.
Sú ágiskun reyndist vanmetin því í september 2026 tilkynnti tæknifyrirtækið OpenAI að gervigreind þeirra hefði leyst jöfnu sem stærðfræðingar höfðu glímt við í um 200 ár án árangurs. Það var Navier-Stokes jafnan.
Þetta er aðeins einn af mörgum risastórum áföngum sem sýna okkur öra þróun gervigreindarlíkana.
En hvernig virkar þessi tækni í raun? Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði hjá Háskóla Íslands, útskýrir að gervigreind byggist almennt á gervitauganetum. Á fyrstu árum var reynt að líkja eftir virkni heilans en núorðið eru skjákort notuð til að fínstilla nóður í tauganeti gervigreindarinnar. Þegar fólk notar gervigreind í gegnum skýið í símanum eða tölvunni fer öll vinnslan fram í gagnaverum.
Skjákort hækka í verði og gagnaver alltaf full
Aukinni eftirspurn eftir reikniafli fylgir gríðarleg verðhækkun á íhlutum sem hinn almenni neytandi notar einnig dags daglega. Skjákort og vinnsluminni eru lykilhlutir því þeir eru ekki aðeins notaðir í tölvum, heldur líka í gagnaverum.
Þetta hefur skapað tímabundna stíflu í aðfangakeðjunni. Öflug skjákort frá Nvidia hafa til dæmis hækkað úr 700 þúsund krónum í 1,7 milljónir króna á aðeins hálfu ári.
Þessi eftirspurn eftir skjákortum hefur gert Nvidia að verðmætasta fyrirtæki í heiminum.
Þrátt fyrir hækkanir hægir ekkert á viðskiptavinum gagnavera. AtNorth hannar, byggir og rekur gagnaver hér á Íslandi og víðar á Norðurlöndunum. Fyrirtækið var í september selt til bandaríska fyrirtækisins Equinox og kanadíska lífeyrissjóðsins CPP Investments.
AtNorth rekur nokkur gagnaver í Reykjanesbæ. Á lóðinni sér fréttamaður tólf byggingar á stærð við fjós; hefðbundin gagnaver og gervigreindargagnaver. Til stendur að fjölga byggingum á næstu árum.
Tölvurnar eru kældar, ýmist með loftkælingu eða vatnskælingu. Vatnið er í lokaðri hringrás en svo er líka smá úði í loftinu til að stýra rakastiginu.
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, segir stöðuna hafa verið þannig síðustu þrjú ár að allt sé uppselt.
„Við erum alltaf „sold out“ hérna og erum bara með tveggja, þriggja ára pípu sem við erum að velta á undan okkur. Viðskiptavinir eru alltaf búnir að tryggja sér gagnaverspláss áður en þeir jafnvel kaupa búnaðinn,“ segir Eyjólfur Magnús.
Gagnaver krefjast mikillar raforku sem skilar sér út í formi varmaorku. Ekki hefur tekist að endurnýta þann varma á Íslandi. En AtNorth með stórt verkefni með fyrirtækinu Selected Group á Jótlandi í Danmörku þar sem risastórt gróðurhús verður reist við hlið gagnavers til að rækta tómata allt árið um kring.
Bylting í svefnrannsóknum á Íslandi
Íslenska svefntæknifyrirtækið Nox Medical hefur þurft að bregðast við hækkandi verði á íhlutum. Svefntæki þeirra eru lítil en flókin hvað varðar rafeindaíhluti.
„Við höfum verið að sjá breytingar á aðfangakeðjunni hvað varðar örgjörva, minniskubba og aðrar rafeindarásir,“ segir Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox.
Nox Medical hefur brugðist við með því að fjárfesta í dýrari lager, en þau líta á þessar verðbreytingar sem tímabundið vandamál. Þau sjá meiri ávinning af því að fleiri gagnaver rísi á Íslandi og um allan heim.
Nox þarf að fylgja reglugerðum um lækningatæki í Evrópu. Hulda segir skýrar kröfur vera um að geyma og vinna gögn í gagnaverum nálægt viðskiptavinum. Gervigreindarlíkanið þeirra hefur þegar fengið fjögur samþykki hjá FDA í Bandaríkjunum. Allt tekur þetta langan tíma.
Aðgengi að öflugu reikniafli og gagnaverum hjálpi til við rannsóknir sem skili sér í betri vörum og meiri vexti til framtíðar að sögn Huldu.
Svefntæki Nox Medical lesa heilarit og öndunarmælingar og senda svo gögnin í gegnum gervigreindarlíkan sem metur svefnstig einstaklingsins.
Samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn eru um 40% Íslendinga yfir fimmtugt með kæfisvefn. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að meirihluti einstaklinga með kæfisvefn séu ógreindir. Jón Skírnir Ágústsson, rannsóknarstjóri gervigreindar hjá Nox Medical, segir gervigreindina lykiltól til að greina sjúklinga hraðar og tryggja rétta meðferð.
„Okkur fannst lækningatækjaframleiðendur ekki vera að standa sig nógu vel í að sýna fram á að gervigreindarlíkönin þeirra virku fyrir alla sjúklinga. Virki eins fyrir karla og konur. Virki fyrir fólk af mismunandi kynþætti, mismunandi aldri, mismunandi líkama. Því öll erum við svo ólík,“ segir Jón Skírnir.