Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.
Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis og á grundvelli ávísunar.
Samkvæmt reglugerðinni er styrkleiki efna í blóði umreiknaður svo að hann samsvari magni 0,5% vínanda í blóði.
Markmið reglugerðarinnar er að geta mælt fyrir um, með hlutlægum hætti, hvenær ökumenn á lyfseðilsskyldum lyfjum teljast ekki geta stjórnað ökutæki með öruggum hætti.
Ráðuneytið áfram með málið til skoðunar
Í tilkynningu frá Innviðaráðuneytinu segir að þar verði málið áfram til skoðunar og metið hvort tilefni sé til frekari breytinga.
Sambærileg reglugerð er í gildi í Noregi.
Ökumönnum ber eftir sem áður ætíð að gæta að eigin ökuhæfni, sbr. 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga og að þeir séu færir um að stjórna viðkomandi ökutæki örugglega.
Opið var fyrir umsagnir um reglugerðina í Samráðsgátt stjórnvalda í byrjun sumars.
Þrjár umsagnir bárust vegna málsins. Frá ADHD-samtökunum, Lyfjafræðingafélagi Íslands og Lyfjastofnun.
Þá skoraði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður á ríkissaksóknara að endurskoða öll mál síðustu sex og hálft ár (frá gildistöku umferðarlaga) þar sem ökumaður taldist óhæfur til að aksturs vegna neyslu lyfja.