„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samtali við Vísi að loknum blaðamannafundi með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, og Beini Johanesen, lögmanni Færeyja.
Í sumar var greint frá því að Icelandair myndi hætta flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuðina en félagið Icelandair hefur um árabil sinnt farþega- og fragtflugi til afskekktrar austurstrandarinnar.
„[Flugið] hefur reynst gott fyrir Grænland bæði vegna ferðamennsku en einnig vegna ferskvöru og grænmetis og svo framvegis,“ segir formaðurinn og bætir við að grænlenska landstjórnin kanni nú hvernig hægt sé að tryggja flug að svæðinu á ný.
„En það er flókið,“ bætir hann við, „vegna þess að auðvitað er um einkarekstur að ræða og við erum að sjá hvað við getum gert til þess að opna leiðina á ný, vegna þess að það skiptir Grænlendinga miklu máli.“
Grænlenska ríkið geti sjálft ekki staðið í því að reka flugfélag. „Og þess vegna er mikilvægt að setja á okkur viðskiptagleraugun,“ heldur Jens-Frederik áfram.
„Það eru hlutir sem við getum gert – ég get ekki lofað að við séum að því akkúrat núna – en við erum að fara í viðræður og innviðaráðherrann okkar er stendur sig vel og vinnur hart að því að finna lausnir.“
Hóteleigandi í Kúlusuk ræddi við Vísi en hann var með öllu ósáttur við það að íslenska flugfélagið hefði hætt að fljúga til Kúlusúkk á milli október og maí. „Ef við fáum enga ferðamenn þá verðum við að skjóta alla hundana,“ sagði hóteleigandinn.
Blaðamannafundur ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna þriggja var haldinn í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík í dag og var þar tilkynnt um frekara viðskiptasamstarf milli Íslands, Færeyja og Grænlands þó þjóðarleiðtogarnir greindu ekki frá smáatriðum þess samtals.
Þar kom þó fram að þrímenningarnir hefðu setið hringborð með fjárfestum af Norðurslóðum og voru leiðtogarnir vongóðir að hægt væri að efla viðskiptasamstarfið í útnorðri.
Eins og þekkt er hafa miklar hræringar orðið í málefnum Grænlands, þar sem nýlega var samið um nýjan varnarsamning við Bandaríkin í kjölfar hótana Bandaríkjaforseta en auk þess tilkynnti Evrópusambandið nýlega um fjárfestingarpakka fyrir Grænland.