Hægt verður að fylgjast með blaðamannafundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ríkisstjórnaroddvitarnir hafi í dag kynnt sér aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og átt fund með alþjóðlegum fjárfestum sem einblínt hafi á tækifæri á vestnorræna svæðinu og norðurslóðum.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna hittast gagngert í einu landanna til að eiga samráð um sameiginleg hagsmunamál. Þá er þetta enn fremur fyrsta heimsókn bæði leiðtoga Grænlands og Færeyja til Íslands frá því að þeir tóku við embætti. Fundurinn er haldinn í kjölfar fyrstu tvíhliða heimsókna forsætisráðherra í embætti sem voru til Þórshafnar í maí og Nuuk í október á síðasta ári,“ segir í tilkynningunni.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.