Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar sem vígasamtökin séu tákn um afneitun vestrænnar menningar og kapítalisma. Í dag eru liðin þrjú ár frá árás Hamas á Ísrael sem kostaði um 1.200 manns lífið, þá voru á þriðja hundrað gíslar teknir inn á Gaza. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna hafa um 59 þúsund almennir borgarar látið lífið á Gaza síðan þá af völdum Ísraelshers.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“