Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Greipjokes“. Síðar í mánuðinum fer Greipur í túr um Bretland og er nú þegar uppselt á nokkrar sýningar í túrnum sem ber heitið „The Icebreaker Tour.“ Greipur hefur vakið töluverða athygli fyrir grínmyndbönd sín á samfélagsmiðlum og margar stjörnur fylgja honum, t.d. leikarinn Bob Odenkirk, sem sló í gegn í þáttaröðinni „Better Call Saul“.
Greipur skemmtir í Sykursalnum