Viðvarandi fjármagnsskortur hefur leitt til uppsafnaðs skorts á námsgögnum í grunnskólum á Íslandi.
Frumvarp til nýrra heildarlaga um námsgögn átti að bregðast við þessum vanda en þar voru lagðar til breytingar á stuðningi ríkisins við nýsköpun, þróun, gerð, þýðingu og útgáfu námsgagna, auk þess sem fjallað er um heimild ráðherra til að setja gæðaviðmið um gerð og útgáfu námsgagna sem njóta stuðnings hins opninbera.
Málið hefur ratað á þingmálaskrá á fjórum þingum og bæði Ásmundur Einar Daðason og Guðmundur Ingi Kristinsson mæltu fyrir frumvarpinu þegar þeir voru ráðherrar menntamála.
Í síðasta mánuði var 158. þing sett en í málaskrá ríkisstjórnarinnar sem var gefin út samhliða þingsetningu er frumvarpið hvergi að finna. Í skriflegu svari til Spegilsins staðfestir mennta- og barnamálaráðuneytið að það verði ekki lagt fram.
Þess í stað hyggst Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, leggja til auknar fjárveitingar til námsgagnagerðar sem hljóða upp á 455 milljónir króna. Hér ber að taka fram að það er 145 milljónum lægra en viðbótarframlagið sem ráðherra hafði í sumar talað um að veita til málaflokksins.
Hlustaðu á umfjöllunina um íslensk námsgögn í Speglinum hér fyrir neðan.
Tuttugu ára innviðaskuld
Mikið hefur verið fjallað um námsgagnaskort í íslensku menntakerfi. Í könnun sem Menntamálastofnun stóð fyrir á sínum tíma kom fram að 70% kennara noti oft eða mjög oft námsefni sem kennarar í skólanum hafa sjálfir búið til.
Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, hefur sagt að staðan sé hræðileg.
„Við erum að horfa upp á svona tuttugu ára innviðaskuld í námsgögnum. Í flestum löndum sem við viljum bera okkur saman við þá geta kennarar gengið að fjölbreyttum námsgögnum sem að henta nemendum með fjölbreyttar þarfir og valið þá fyrir sinn hóp. Hérna getum við varla sagt að við séum með námsbók per námsgrein,“ sagði Íris í Síðdegisútvarpinu í byrjun sumars.
Í Síðdegisútvarpinu í sumar var líka rætt við Þórdísi Jónu Sigurðardóttur forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem segir að lítil fjárráð MMS standi þeim fyrir þrifum.
„Það er mjög erfitt að nýta fjármuni í nýsköpun og nýtt kennsluefni þegar meira og minna peningurinn fer í að endurprenta gamalt,“ sagði Þórdís.
Spretthópur skipaður og málþing haldið
Ráðherrar menntamála hafa lengi talað um að bregðast við stöðunni.
Í fyrstu aðgerðaáætlun menntastefnunnar sem var gefin út fyrir fimm árum, þegar Lilja Alfreðsdóttir var menntamálaráðherra, kom fram að efla ætti Þróunarsjóð námsgagna og Námsgagnasjóð.
Þegar Ásmundur Einar Daðason var tekinn við sem ráðherra menntamála, var málþing haldið um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna og spretthópur skipaður.
Í skýrslu hópsins kom fram að heildarútgjöld ríkisins til málaflokksins væru um 532,5 milljónir króna eða 0,4% árlegs heildarkostnaðs hvers nemanda í skyldunámi. Það hlutfall var töluvert lægra en í algengum samanburðarríkjum en ef íslenska ríkið vildi verja sömu hlutfallslegu fjárfestingu til námsgagnakaupa og Finnar, til dæmis, yrði ríkið að þrefalda eða fjórfalda fjármagnið.
Náði ekki að tvöfalda fjárframlagið
Í ágúst 2024 tilkynnti Ásmundur Einar að ríkisstjórnin ætlaði að tvöfalda fjárframlag til námsgagnagerðar og gera námsgögn gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema fram að 18 ára aldri. Frumvarpið um ný heildarlög um námsgögn hafði þá verið samþykkt úr ríkisstjórninni en það náði aldrei í gegnum þingið. Í október sama ár var ríkisstjórnarsamstarfinu slitið.
Nýr menntamálaráðherra, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, tók við taumunum í desember 2024. Í stefnuyfirlýsingu nýju ríkisstjórnarinnar var boðuð sókn í menntamálum og tekið fram að áhersla yrði lögð á aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum. Ásthildur Lóa náði ekki að efla útgáfu námsgagna í sinni tíð sem menntamálaráðherra.
Í mars 2025 tók Guðmundur Ingi Kristinsson við embætti mennta- og barnamálaráðherra. Mánuði síðar mælti hann fyrir nýjum heildarlögum um námsgögn, nánast sama frumvarpi og Ásmundur Einar hafði lagt fram í sinni tíð sem ráðherra málaflokksins.
Í júlí gaf Guðmundur Ingi út aðra aðgerðaáætlun menntastefnunnar en þar kom fram að efla ætti útgáfu námsgagna, með þeim fyrirvara að frumvarpið yrði samþykkt. Frumvarpið var þó ekki samþykkt í hans tíð og Inga Sæland tók formlega við embætti mennta- og barnamálaráðherra í janúar 2026.
Sjóðurinn rýrnað stöðugt
Í nýrri skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna, sem birt var í maí, segir að fjármagn til námsgagna hafi rýrnað stöðugt að raunvirði í nær tvo áratugi og að sjóðurinn sé í dag aðeins 36% af upprunalegu raunvirði. Sömu þróun megi sjá hjá Námsgagnasjóði og námsefnisþætti Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
Þróunarsjóður námsgagna fékk um hundrað milljónir króna við stofnun árið 2007 en á fjárlögum 2026 fær hann tæpar 90 milljónir. Til að viðhalda upprunalegu raunvirði hefði sjóðurinn þurft um 250 milljónir króna.
Þess ber að geta að við stofnun sjóðsins árið 2007 var ætlunin að tvöfalda fjármagnið á fyrsta starfsári. Vegna efnahagshrunsins var því ekki framfylgt.
Í sumar tilkynnti mennta- og barnamálaráðuneytið að það hefði sett af stað tvær kannanir um stöðu námsgagna í stærðfræði fyrir kennara sem kenna stærðfræði, annars vegar í grunnskólum og hins vegar í framhaldsskólum.
Samkvæmt niðurstöðum kannannanna er kjarnaefni, sem komið er til ára sinna, enn burðarás kennslunnar. Um 76% grunnskólakennara sögðust oft þurfa viðbótarefni og 84% nota eigin verkefni reglulega.
600 milljónir urðu að 455
Í júlí sagði Inga Sæland í viðtali á Bylgjunni að gert yrði ráð fyrir 600 milljóna króna viðbótarfjármagni til útgáfu námsgagna í næstu fjárlögum. Tæpum mánuði fyrr hafði þingið farið í sumarfrí án þess að námsgagnafrumvarpið hefði verið samþykkt.
Í síðasta mánuði bárust niðurstöður síðasta PISA-könnunarprófs. Árangur íslenskra nemenda hefur aldrei verið jafn slæmur.
Á blaðamannafundi þar sem Inga kynnti aðgerðir til að bregðast við þessari þróun kom fram að ríkisstjórnin ætlaði að leggja 455 milljónir króna viðbótarframlag til íslenskrar námsgagnagerðar. Eins og fyrr kom fram er sú upphæð 145 milljónum króna lægri en viðbótarframlagið sem Inga talaði um í sumar.
Í skriflegu svari til Spegilsins segir að, að því gefnu að fjárlagafrumvarpið verði samþykkt, renni 380 milljónir til námsgagna á grunnskólastigi og 75 milljónir til námsgagna á framhaldsskólastigi. Fjárveitingin fari í þróun, útgáfu, miðlunar og innleiðingar nýrra og endurbættra námsgagna.
Þá kemur fram að þessi fjárveiting marki verulega innspýtingu í þróun og útgáfu námsagna á Íslandi, sem sé ein af megináherslum mennta- og barnamálaráðherra í aðgerðum stjórnvalda við að efla íslenska menntakerfið.
Samkvæmt upplýsingum Spegilsins er þetta viðbótarframlag til námsgagna aðeins brot af þeirri innviðaskuld sem blasir við í málaflokknum.