Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuði, en ekki hefur verið gengið frá leigu á húsnæði.
Í júní auglýstu Ríkiseignir eftir húsnæði til leigu fyrir brottfararstöð á Suðurnesjum - bæði tímabundið og til langtíma. Þar á að vista fólk sem hefur verið synjað um dvöl og neitað að yfirgefa landið. Fólk í þeirri stöðu hefur verið úrskurðað í gæsluvarðhald á Hólmsheiði sem eykur álag á fangelsin og lengir boðunarlista þeirra.
Tímabundna húsnæðið átti að vera tilbúið fyrir 1. desember þegar lög um brottfararstöð taka gildi og eitt af skilyrðunum var að það væri ekki nálægt íbúabyggð.
Fjórtán tilboð bárust og um miðjan september tilkynnti dómsmálaráðuneytið að fýsilegasti kosturinn væri skrifstofuhúsnæði við Klettatröð 8 á Ásbrú, sem reyndar er nálægt byggð og rúman kílómetra frá næsta grunnskóla.
Síðan þá hafa Ríkiseignir átt í viðræðum við eigendur hússins, sem ekki sér fyrir endann á.
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að þessi staða mála komi sér lítið á óvart.
„Við sáum náttúrulega frá upphafi að allt svona tekur tíma,“ segir Vilhjálmur.
Gisting óheimil á svæðinu
Svæðið, þar sem húsið stendur, er skilgreint sem athafnasvæði og því eru hvorki íbúðir né gististarfsemi heimil þar, samkvæmt aðalskipulagi Reykjanesbæjar.
Samkvæmt upplýsingum frá bænum hefur engin beiðni borist frá stjórnvöldum um að breyta skipulaginu - en sveitarfélagið gæti reyndar hafnað slíkri beiðni.
Til að heimila gistingu í húsinu að Klettatröð 8 þyrfti að fara í lögbundið skipulagsferli, vinna nýtt deiliskipulag og síðan sækja um byggingaleyfi vegna breyttrar notkunar á húsinu.
Það ferli gæti tekið talsverðan tíma, en engin beiðni hefur borist frá stjórnvöldum um að breyta skipulaginu.
Tæki ekki styttri tíma en hálft ár
„Reynslan sýnir bara að að þegar þarf að breyta skipulagi, hvort sem það er fyrir þessa starfsemi eða aðra, þá erum við aldrei að tala um styttri tíma en hálft ár,“ segir Vilhjálmur.
Í skriflegu svari frá dómsmálaráðuneytinu til fréttastofu segir að ef samningar náist um húsið þurfi að breyta aðalskipulagi. Því sé útlit fyrir að brottfararstöðin verði ekki opnuð innan tveggja mánaða, eins og til stóð.
Ekki mikil stemning fyrir breytingu á skipulagi
Spurður hvort bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ muni samþykkja beiðni um breytingu á aðalskipulagi, óski ríkið þess, segir Vilhjálmur ómögulegt að svara til um það á þessari stundu.
„En ég get alveg staðfest það, eins og staðan er í dag, eins og dæmið lítur út í dag er stemningin ekki mikil til þess.“