Rússneska lýðheilsustofnunin, Rospotrebnadzor, segir enga hættu á að faraldur brjótist út í landinu. Þetta eru viðbrögð við fréttum af dauðsfalli 28 ára konu sem vann á rannsóknastofu í Irkutsk-héraði í Síberíu og lést í síðustu viku.
Dánarorsök hefur ekki verið staðfest en rússneski fréttamiðillinn Lyudi Baikala (Fólkið í Baikal) greinir frá því að konan hafi dáið úr pláguveirunni, sem er stundum nefnd svarti dauði á íslensku, hugsanlega eftir að tilraunaglas brotnaði í meðhöndlun.
Lýðheilsustofnunin segir að dánarorsök konunnar hafi verið lungnabólga en orsök sýkingarinnar liggi ekki fyrir. Engin hætta sé á að farsótt sé að breiðast út og ítarleg rannsókn hafi ekki leitt nein neyðartilfelli í ljós.
Þá hafi langflestir af þeim sem hafi komist í snert við veiru verið skoðaðir. Jafnframt var tekið fram að konan sem lést hefði verið bólusett og verið ónæm fyrir veirunni sem hún var að meðhöndla.
Þrátt fyrir þetta hefði verið gripið til ákveðinna öryggisráðstafana. Vitað er að nokkrir hafa meðal annars verið settir í sóttkví fram eftir vikunni.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunina vantar upplýsingar
Dmitry Peskov talsmaður rússneskra stjórnvalda sagði á fundi með fréttamönnum í morgun að ýmislegt í fréttaflutningi um dauðsfallið væri ósatt og frekar ætti að treysta á upplýsingar frá lýðheilsustofnuninni.
Þar vísaði hann meðal annars í fréttir af að annar starfsmaður hefði greinst með lungnabólgu af óþekktum orsökum.
Peskov vísaði jafnframt á bug frétt ABC-fréttastofunnar um að Bandaríkin hefðu kvartað formlega yfir hvernig rússnesk stjórnvöld hefðu tekið á málinu og hvatt þau til gagnsæis. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur staðfest að óskað hafi verið eftir nánari upplýsingum.
Evrópusambandið hefur einnig óskað eftir því að rússnesk stjórnvöld deili öllum upplýsingum um dauðsfall konunnar.
Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sagt að hún geti ekki metið hættuna því það liggi ekki allar upplýsingar fyrir frá Rússum.
Yfirvöld í Mongólíu hafa ákveðið að herða eftirlit á landamærum sínum að Rússlandi. Þó að hættan sé ekki mikil verður viðeigandi stofnunum falið að grípa til varúðarráðstafana til að afstýra mögulegri hættu.