Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi senda frumvarpið í samráðsgátt.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í morgun að frumvarp ráðherra væri augljóslega mjög heimskulegt.
Frumvarpið er samkvæmt greinargerð liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir kjarasamningum – þeir eiga að öðlast gildi 1. júlí á næsta ári og gilda um leigusamninga sem komast á eftir það. Þingmenn stjórnarandstöðu vöktu athygli á ummælum seðlabankastjóra en Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði þau fullkomlega óábyrg.
„Þannig að ég skil ekki þessar yfirlýsingar og ég skil ekki þennan mótþróa, ég skil það hjá stjórnarandstöðunni sem er á móti öllu sem við reynum að gera til að bæta stöðu þeirra sem höllum fæti standa í okkar samfélagi, öllu, einu og öllu þannig að ég hvet ykkur til að endurhugsa þetta og keyrum þetta mál áfram og klárum þetta,“ sagði Ragnar Þór á Alþingi í dag.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mótmælti þessu.
„Það er náttúrlega með ólíkindum að koma hér upp og halda því fram hér í þessum ræðustól Alþingis að stjórnarandstaðan sé á móti öllu sem sé verið að gera til að bæta hag almennings í landinu,“ sagði Stefán.
Seðlabankastjóri sé ekki vandamálið
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, töldu bæði að seðlabankastjóri hefði lög að mæla.
„Og þau skilja ekkert í þessu og þeim finnst þetta ótrúlega leiðinlegt að hann sé að tjá sig. Gæti verið að vandamálið sé ekki sérfræðingarnir? Gæti það verið? Gæti það verið að það sé ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem sé helsta vandamálið þegar kemur að baráttunni gegn verðbólgunni? Já, það gæti verið,“ sagði Guðlaugur Þór.
„Nú er komin í ljós þessi einkunn seðlabankastjóra að málið sé heimskulegt og ég hefði talið fara betur á því að fresta umræðu um þetta mál til þess að gefa þingmönnum kost á að kynna sér það til hlítar fyrir fyrstu umræðuna,“ sagði Sigríður Andersen.