Héraðssaksóknari hefur ákært mann á fimmtugsaldri fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn er sakaður um að hafa staðið að innflutningi á samtals 604 töflum af OxyContin 80, ætluðum til söludreifingar hér á landi, en fíkniefnin voru í farangurstösku sem ákærði kom með til landsins mánudaginn 23. júní 2025 með flugi frá Tenerife. Hinn ákærði, Hafþór Fjalar Kristinsson, skildi töskuna eftir eftir við komuna til landsins en reyndi að sækja hana hjá farþegaþjónustu Airport Associacates fimmtudaginn 26. júní 2025.
Hafþór ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot – Flutti inn mikið magn efna frá Tenerife