Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Johannesen, lögmanns Færeyja, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis í dag.
Leiðtogar landanna þriggja hafa átt samráðsfund í dag en á blaðamannafundi greindu þeir frá því að þeir hefðu rætt við viðskiptaleiðtoga í von um að efla viðskipti og samstarf milli landanna. Fyrr um daginn höfðu þau einnig skoðað varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.
„Það eru mörg tækifæri fyrir okkur til þess að vaxa,“ sagði Kristrún á blaðamannafundinum í dag, sem haldinn var á ensku.
Þau fóru þó ekki í smáatriði um það hvernig þessu aukna samstarfi yrði háttað.
Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna hittast gagngert í einu landanna til að eiga samráð um sameiginleg hagsmunamál, að því er fram kom í tilkynningu frá stjórnarráðinu í gær.
Beinir sagði þó að þetta yrði aðeins fyrsta skipti af mörgum þar sem leiðtogar landanna þriggja myndu hittast saman.
„Ég held að þetta sé upphaf á meira og breiðara samstarfi milli landanna þriggja,“ sagði Færeyingurinn.
Jens-Frederik tók undir og kvaðst spenntur fyrir frekara samstarfi. „Ég held að við höfum marga ókannaða möguleika,“ bætti Grænlendingurinn við.
Fundurinn er haldinn í framhaldi af miklum hræringum í málefnum Grænlands, þar sem nýlega var samið um nýjan varnarsamning við Bandaríkin í kjölfar hótana Bandaríkjaforseta en auk þess tilkynnti Evrópusambandið nýlega um fjárfestingarpakka fyrir Grænland.
„Ég held að samkomulagið sem við gerðum milli landanna þriggja sé mjög góður samningur fyrir okkur en einnig fyrir NATO og Evrópu,“ sagði Jens-Frederik þegar hann var spurður út í þríhliða samning Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur um varnarmál á Grænlandi.
Hann þakkaði Íslendingum fyrir stuðninginn sem Grænland hefur notið undanfarið ár auk þess sem Íslendingar hafa verið fylgjandi því að Grænland fái sinn eigin fulltrúa í Norðurlandaráði.
Undir lok fundarins spreytti forsætisráðherrann sig á dönsku.
„Vi tænkte at gøre det hele på dansk,“ sagði Kristrún þá og viðstaddir flissuðu.