Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í ljósi þess hve mikla áherslu Miðflokkurinn leggur á útlendingamál í orði kom á óvart þegar þingmenn flokksins studdu ekki brottfararstöðina. Í dómsmálaráðuneytinu hafa verið unnin drög að frumvarpi sem leiðréttir atkvæðamisvægi að því marki sem hægt er að gera án þess að breyta stjórnarskrá. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina