„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag.
Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demókratar næðu meirihluta í fulltrúadeildinni yrði hann ákærður af þeim fyrir embættisbrot. Blaðamaður spurði hann nákvæmlega fyrir hvað hann héldi að Demókratar myndu ákæra hann.
„Þeir vita það ekki,“ sagði Trump.
Hann sagði að þrír þingmenn Demókrataflokksins hefðu verið spurðir hvað þeir ætluðu að ákæra hann fyrir, þrátt fyrir allt sem hann hefði afrekað, og sagði að þeir hefðu ekki getað svarað. Hvaða þingmenn hann er að tala um er ekki ljóst en Trump sagði einn þeirra hafa verið forviða þegar hann var spurður.
„Hafandi sagt það, þá hefði ég getað gert mjög slæma hluti við Hillary Clinton. Ég hefði getað gert mjög, mjög slæma hluti við Joe Biden. Ég hefði getað gert mjög slæma hluti við Barack Hussein Obama. Ég taldi að það væri óviðeigandi því þú verður að koma fram við forsetaembættið af virðingu.“
Þá sagðist Trump hafa komist að því að þau hefðu ákært hann fyrir embættisbrot tvisvar sinnum, sem gerðist á fyrra kjörtímabili hans.
„Enn á þessari stundu get ég gert hvað sem ég vil, ef ég vil það. Þau hafa gert mjög slæma hluti. Það var rétt í þessu minnst á það í formi spurningar hvað þau gerðu. Það sem þau gerðu var mjög ólöglegt. Marga ólöglega hluti.“
Trump bætti við að hann bæri gífurlega virðingu fyrir forsetaembættinu.
DOOCY: You’re telling voters that the Democrats will impeach you if they win. For what? TRUMP: They don’t know. I could have done very bad things to Hillary Clinton, Joe Biden, and Barack Hussein Obama. I thought it would be Inappropriate to because you have to treat the office of the presidency with respect. To this moment I can do whatever I want if I want. They've done some very bad things. It was just mentioned in the form of a question what they did, very illegal what they did.
— Acyn (@Acyn) October 7, 2026
Tvisvar ákærður fyrir embættisbro
Bandaríkjaforseti hefur fjórum sinnum í sögu landsins verið ákærður fyrir embættisbrot, og Trump tvisvar af þessum fjórum skiptum.
Í fyrra skiptið var Trump gert að sök að hafa beitt utanríkisstefnu Bandaríkjanna gegn Úkraínu með því markmiði að þvinga Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, til að tilkynna upphaf tveggja rannsókna sem myndu nýtast Trump í næstu forsetakosningum.
Seinna skiptið sneri að árásinni á þinghúsið í janúar 2021.
Forsetinn fór því næst að tala um það að í bæði skiptin þegar hann var ákærður fyrir embættisbrot hefðu atkvæðagreiðslurnar um það hvort hann væri sekur verið honum mikið í vil. Hann hefði ekki haft neinar áhyggjur á sínum tíma.
Sjá einnig: Trump sýknaður
Hann endaði svarið á því að segja aftur að ekki mætti koma fram við forsetaembættið af vanvirðingu.
„Aftur, ég hafði tækifæri, og hef enn, gegn Biden, Hillary Clinton og Barack Hussein Obama. Fullt af fólki hefur sagt við mig: „Vöðum í þau“ en ég svaraði: „Nei, þú getur ekki gert forsetaembættinu það.“
Fyrr á árinu rak Trump Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra en það gerði hann meðal annars vegna þess að honum þótti hún ekki ganga nógu hart fram gegn pólitískum andstæðingum sínum.
Líklegra að ráðherrar verði ákærðir
Þingmenn Demókrataflokksins hafa kallað eftir því að Trump verði ákærður fyrir embættisbrot og þá á grunni spillingar. Fjölskylda forsetans hefur auðgast gífurlega frá því hann tók aftur við embætti.
Flestir hafa þó viljað forðast þá umræðu og hafa frekar talað um mikla þörf á eftirliti með ríkisstjórn hans og aðhaldi gegn henni.
Í frétt PBS frá síðasta mánuði segir til að mynda að Demókratar séu mun líklegri til að kæra tiltekna ráðherra Trumps fyrir embættisbrot. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, sé þeirra á meðal. Robert . Kennedy Jr., heilbrigðisráðherra, er einnig talinn koma til greina.