Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.
Ásgeir sagði í morgun að frumvarpið væri „augljóslega mjög heimskulegt“ en í Kastljósi í kvöld sagði hann Seðlabankann ekki hafa fengið frumvarpið til umsagnar.
„Seðlabankinn hefur ekki fengið þetta frumvarp til umsagnar, þannig að ég var í sjálfu sér ekki að gefa umsögn um frumvarpið sem við höfum ekki skoðað,“ sagði Ásgeir. Aðspurður hvort hann hefði getað verið varfærnari í orðalagi svaraði hann að það væri mögulega rétt.
Hann sagði þó almennt ekki rétta leið til að ná tökum á verðbólgu að beita boðum og bönnum.
Þróun leiguverðs skipti Seðlabankann miklu máli og mikilvægt væri að aðgerðir stjórnvalda leiddu ekki til hækkunar leiguverðs. Hann sagði bankann sammála markmiðum stjórnvalda í málaflokknum.
Ásgeir benti á að töluvert væri af tómum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sem erfitt væri að selja. Að hans mati ætti að stefna að því að koma fleiri slíkum íbúðum á leigumarkað.
Hann sagðist einnig hafa trú á að leiguverð gæti lækkað þegar þensla á húsnæðismarkaði væri farin að minnka.
„Kannski er það sem við vorum að segja í dag að þetta sé hættulegur vegur að ætla að fara eftir,“ sagði Ásgeir, en ítrekaði að orð sín ætti ekki að túlka sem beina umsögn um frumvarpið sjálft.
Telur verðbólguna hafa náð hámarki
Ásgeir var að öðru leyti bjartsýnni á stöðu efnahagsmála en oft áður og sagði daginn hafa verið góðan. Mat Seðlabankans væri að verðbólga hefði náð hámarki og myndi fara lækkandi.
Hann sagði einnig jákvætt að þrjú stór kjarafélög hefðu ákveðið að segja ekki upp kjarasamningum, auk þess sem fyrirtæki, ríki og sveitarfélög hefðu lýst yfir vilja til að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum.
Hann sagði slíkan samhljóm hafa vantað og að með áframhaldandi aðhaldi væru forsendur fyrir því að verðbólga færi lækkandi á næsta ári. Óvissa væri þó enn til staðar, meðal annars vegna stöðunnar hjá VR.
Ásgeir sagðist ekki geta sagt nákvæmlega hvaða afleiðingar það hefði ef félagið segði upp kjarasamningum en að það myndi gera vegferðina erfiðari.