Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst óánægju með áform hóteleigenda um að samkomusalnum í Valaskjálf verði breytt í gistirými.
Héraðsbúar hafa síðan í sumar lýst hve mikið högg það væri fyrir samfélagið að missa sögufræga samkomusalinn í Valaskjálf, þar sem hafa verið óteljandi dansleikir, leiksýningar og fjölbreyttir menningarviðburðir.
Íbúafundur var haldinn um framtíð hússins í september, en það hefur verið í eigu einkafyrirtækis í ferðaþjónustu síðan 1998. Eigendur þess hafa sagt leigu á salnum undir viðburði ekki standa undir sér lengur.
Hvorki nóg af fermetrum né peningum
Sveitarfélagið ákvað að kanna hvort hentaði að kaupa hótelhluta hússins undir bæjarskrifstofur.
„Bæði eru fermetrarnir í Valaskjálf ekki nægir í hótelhlutanum til að fullnægja þörf skrifstofunnar. Svo er líka ljóst að það að breyta hóteli í skrifstofur yrði mjög kostnaðarsamt og við sáum fram á að þetta myndi aldrei borga sig,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi, um niðurstöðu byggðarráðs, sem mælir gegn kaupunum við sveitarstjórn – sem á þó lokaorðið um framhaldið.
Dagmar segir eins að sumu leyti hefði það skotið skökku við að fækka hótelrýmum á Héraði þetta mikið, til þess að koma fyrir skrifstofum.
Sveitarfélagið hefur áður hafnað að leigja salinn af fyrirtækinu, það væri líka of kostnaðarsamt.
„Það er bara ljóst að þetta er fjárhagslega of þungt fyrir sveitarfélagið, báðar þessar leiðir. Þannig þetta bara fer held ég ekki lengra hjá sveitarfélaginu sýnist mér.“