Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir

Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir

Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir

„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög gera kröfu um. Engu að síður hafa yfirvöld í Serbíu neitað okkur um að opna kjörstað hér, sem sviptir mörg okkar lýðræðislegum kosningarrétti þar sem næsta sendiráð er í Osló,“ segir stærðfræðikennarinn Mladen Živanović en hann hefur verið búsettur á Íslandi síðustu ellefu árin og er í dag kennari við Landakotsskóla.

Hann segir fjölda Serba ólman í að taka þátt í kosningunni því fólk vilji koma Serbneska framfaraflokknum, SNS, frá völdum. Hann hafi verið við völd síðustu fjórtán árin og sé ein helsta ástæða þess að hann flutti frá Serbíu. Flokkurinn sé spilltur og hafi ekki að hans mati hagsmuni almennings að leiðarljósi í ákvörðunum sínum.

Kjörstjórn Serbíu tilkynnti nýlega að utankjörfundarkosning eigi aðeins að fara fram á sama tíma erlendis og kosning fer fram í Serbíu auk þess sem kjörstjórnin samþykkti aðeins takmarkaðan fjölda kjörstaða erlendis. Það hefur gert stórum hluta brottfluttra Serba erfitt fyrir að kjósa. 

Ákvörðunin þýðir, til dæmis, samkvæmt frétt ABC, að kjósendur í Chicago, þar sem stórt serbneskt samfélag býr, þyrftu að greiða atkvæði á milli klukkan eitt að nóttu og tvö síðdegis, og Serbar í hlutum Ástralíu og Nýja-Sjálands þyrftu að mæta á kjörstað, sem yfirleitt er komið upp í sendiskrifstofum og öðrum skrifstofum, til að kjósa að næturlagi.

Þúsundir á Íslandi sem fái ekki að kjósa

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár voru í upphafi árs búsettir 247 Serbar á Íslandi en voru 161 í upphafi árs 2019. Þeim hefur því fjölgað töluvert síðustu árin. Mladen segir fjöldann þó nærri þúsundum. Hér sé fjöldi stúdenta, fólk með dvalarleyfi og sumir með tvöfaldan ríkisborgararétt í Króatíu og Serbíu sem ekki séu endilega skráðir hjá Þjóðskrá. 

Þingkosningar fara fram í Serbíu þann 25. október. Kosningarnar áttu að fara fram í desember upprunalega en Aleksandar Vučić fyrrverandi forseti boðaði til kosninga í upphafi septembermánaðar. Hann sagði svo af sér um tveimur vikum síðar. Hann hafði setið sem forseti frá árinu 2014 og voru sjö mánuðir eftir af fimm ára kjörtímabilinu sem hófst árið 2017 þegar hann tilkynnti afsögn sína.

Vučić sagði af sér í kjölfar mikilla mótmæla sem hafa í raun staðið allt frá því að jánrbrautarstöð hrundi í nóvember fyrir tveimur árum með þeim afleiðingum að sextán létust og tugir slösuðust. Járnbrautarstöðin var í borginni Novi Sad og hrundi í nóvember árið 2024.

Járnbrautarstöðin var reist árið 1964 og hófst endurnýjun á henni 2021. Mótmælendur hafa meðal annars krafist þess að einhver axli ábyrgð á harmleiknum. Mótmælendur töldu að slysið endurspeglaði meira en áratug af stjórnartíð flokks Vučić, sem talaði mikið fyrir endurbættri stöð, en endurbæturnar áttu að vera tákn um framfarir í Serbíu.

Serbía á krossgötum

Í erlendum miðlum er talað um að nú, tveimur árum síðar, sé Serbía á krossgötum og vilji fólks til að kjósa sér ríkisstjórn sem ekki sé spillt sé mikill. Í erlendum miðlum kemur jafnframt fram að orsök hrunsins sé enn til rannsóknar en hrun lestarstöðvarinnar leiddi af sér fjölda mótmæla sem enn eiga sér stað. Stúdentar hafa leitt mótmælin og fylking þeirra tilkynnti svo, eftir að Vučić boðaði til kosninga, að þau ætluðu að bjóða fram sinn eigin flokk í kosningunum.

Mladen segir það að stjórnvöld hafni því að opna kjörstað á Íslandi valda fólki af serbneskum uppruna sem býr hér á Íslandi miklum áhyggjum og snerti samfélag þeirra með beinum hætti.

„Þrátt fyrir að bæði tilskilinn fjöldi kjósenda og fullbúið húsnæði liggi fyrir hafa kosningayfirvöld neitað að samþykkja kjörstaðinn,“ segir hann.

Samkvæmt opinberum kosningareglum sé heimilt að opna opinberan kjörstað ef að minnsta kosti 100 manns skrá sig til að kjósa á tilteknum stað erlendis. Hann segir að með því að vísa fólki til sendiráðsins í Osló geti fæstir nýtt kosningaréttinn.

„Gríðarleg fjarlægð okkar frá Ósló, þar sem næsta serbneska sendiráð er staðsett, gerir flestum okkar ókleift að ferðast þangað og nýta okkur þann grundvallarrétt í lýðræðisríki að styðja fólkið okkar heima fyrir.“

Mladen segir að ekki sé í boði fyrir kjósendur að senda atkvæðið til Osló, atkvæðinu verði að vera skilað beint í kassann. Hann segir Serba þannig í raun aðeins geta farið til Ósló að kjósa því að með því að skrá sig til utankjörfundaratkvæðagreiðslu hafi þeir fyrirgert rétti sínum til að kjósa í Serbíu. Þeir geti því heldur ekki farið heim til að kjósa.

Um 107 þúsund manns víða um heim hafi skráð sig í utankjörfundaratkvæðagreiðslu en miðað við þá kjörstaði sem hafi verið samþykktir geti aðeins um 70 þúsund þeirra raunverulega greitt atkvæði.

„Eftir eru þá 37 þúsund sem myndu þurfa að ferðast mjög langa leið til að kjósa.“

Vilja skapa þrýsting

Hann segir kjörstjórn í Serbíu eiga að funda með lögfræðingum stjórnarandstöðunnar í dag um þessa stöðu og þess vegna vilji hópurinn sem hefur reynt að opna kjörstað hér reyna að skapa þrýsting.

„Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa, sem er í lögum,“ segir hann og að það myndi hjálpa verulega ef stjórnvöld á Íslandi myndu styðja kröfu þeirra um að fá að opna kjörstað. Það snúist ekki um að styðja stjórnarflokk eða stjórnarandstöðu heldur rétt fólks til að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa. Hann telur að Ísland muni koma upp á fundi kjörstjórnar.

„Ísland hefur reglulega komið upp í umræðu vegna erfiðrar landfræðilegrar legu sinnar. Það ætti að vera kjörstaður hér því það er svo langt í næsta sendiráð.

„Svo hefur fólk almennt mjög mikinn áhuga á þessum kosningum og vill nýta atkvæðisrétt sinn.“

Hann segir þetta kjörstaðamál ekki einsdæmi um það að SNS reyni að misnota vald sitt með því að ógna eða hræða. Hann hafi áður séð um að kenna serbneskum börnum kyrilisku og um menningu Serba en skyndilega verið rekinn í maí.

„Í menntakerfinu okkar í Serbíu er til áætlun um kennslu serbneskra barna erlendis. Kennarar eru skipaðir í ýmsum löndum og þeir kenna síðan serbneskum börnum kyrillískt letur, menningu, tungumál og sögu. Ég sinnti því í tvö ár og síðan kom umsjónarmaður áætlunarinnar, sem vinnur með öllum kennurunum um allan heim, óboðuð í tíma til mín til að gera eftirlit.“

Heimsóknin mikið högg

Mladen segir þessa óboðuðu heimsókn hafa verið högg.

„Við vorum aðeins með 15 nemendur og þetta var í raun ekki eftirlit, því í eftirliti situr manneskja aftast í kennslustofunni, fylgist með því sem kennarinn gerir og skilar síðan skýrslu. En það sem hún gerði var að hún spjallaði við nemendurna í hranalegum tón og sumir þeirra urðu svolítið hræddir við það hvernig hún talaði við þá. Sumir foreldranna voru mjög ósáttir við að börnin þeirra kæmu þannig heim og eitt barnið vildi ekki koma aftur í tíma. Og á endanum ráku þau mig.“

Mladen segist hafa gert athugasemdir við menntamálaráðuneytið í Serbíu í kjölfar skoðunarinnar og þá sérstaklega af hverju hann hafi ekki verið látinn vita af henni. Ráðuneytið hafi í svörum sínum vísað til þess að þau hafi heimild til að fara í skoðun án þess að láta vita fyrir fram.

„Þannig að það eru nokkur atriði sem eru að gerast í serbneska samfélaginu hérna. Þess vegna eru margir mjög ákafir í að fá að greiða atkvæði og eru líka brjálaðir út í stjórnvöld af því að þau eru að pirra fólk jafnvel utan Serbíu.“

Eins og kom fram að ofan áttu kosningarnar upprunalega að fara fram í desember. Mladen segir því vinnu hópsins um að opna kjörstað á Íslandi því löngu hafna og þau hafi unnið að því að safna undirskriftum allt frá því í mars, áður en boðað er til skyndikosninga. Þau hafi auk þess fundað með sendiherranum í júní en fengið misvísandi leiðbeiningar þar um fyrirkomulagið við utankjörfundaratkvæðagreiðsluna. Hann segir þau hafa fundið tvo staði sem gætu komið til greina sem kjörstaðir og leyfi frá báðum en stjórnvöld í Serbíu hafi hafnað þeim.

Kjörsókn erlendis ekki stjórnvöldum í hag

Mladen segir að á stuðningsfundi á sunnudaginn, sem skipulagður var af einstaklingum sem berjast fyrir mannréttindum og réttindum brottfluttra, hafi sérstaklega verið bent á hversu landfræðilega einangrað Ísland er frá næsta serbneska sendiráði eða sendiskrifstofu.

„En þetta mál nær út fyrir Ísland. Mikil kjörsókn meðal Serba erlendis er almennt ekki stjórnvöldum í hag og þess vegna er markvisst verið að reisa hindranir til að bæla niður atkvæði erlendis frá,“ segir hann en í serbneskum miðlum má sjá að reglur utanríkisráðuneytisins um utankjörfundaratkvæðagreiðslu megi koma til með að hafa veruleg áhrif á tugi þúsunda kjósenda sem séu búsettir í, til dæmis, Rúmeníu, Búlgaríu, Tyrklandi, Slóvakíu og Katar.

Milos Petrovic, dósent í íþróttafræði við Háskóla Íslands, og Ljubica Zivojinovic, verkefnastjóri og iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur, taka undir með Mladen.

„Þetta er alvarlegt brot á grundvallarlýðræðisréttinum til að kjósa. Það að ætlast til þess að serbneskir ríkisborgarar búsettir á Íslandi ferðist yfir hafið til Óslóar til að greiða atkvæði kemur í raun í veg fyrir að margir þeirra geti nýtt sér þann rétt og vekur alvarlegar áhyggjur af því að kjósendur séu kerfisbundið fældir frá því að láta pólitískan vilja sinn í ljós. Þegar borgurum erlendis er ekki tryggður raunhæfur möguleiki á að kjósa er fullkomlega réttmætt að efast um lýðræðislegt eðli slíks kerfis,“ segir Milos.

Myndin er tekin á mótmælum stúdenta í maí í fyrra en mikil fjöldi safnaðist þá saman til að kalla eftir því að kosningar myndu fara fyrr fram.Vísir/EPA

Ljubica segir hindranir sem Serbar sem búi erlendis mæta af fjölbreyttum toga. Það sé flókið skrifræði og viðkomandi stofnanir í Serbíu afar seinfærar.

„Ísland er skýrt dæmi um þetta, þar sem borgurum var synjað um kjörstað þrátt fyrir að búið væri að safna öllum nauðsynlegum skráningum og uppfylla öll skilyrði. Svipuð staða kom upp í mörgum öðrum borgum víða um heim þar sem kjörstaðir voru einfaldlega ekki opnaðir. Þótt milljónir borgara búi erlendis neyðir skortur á öðrum leiðum, svo sem póstkosningu, fólk til að ferðast klukkustundum saman til að komast að næsta sendiráði“

Hún segir brottflutta Serba eina mestu ógnina við núverandi stjórnvöld.

„Þess vegna dregur ríkisstjórnin kerfisbundið úr kjörsókn Serba erlendis til að lágmarka áhrif þeirra á niðurstöður kosninga. Á sama tíma byggir Serbneski framsóknarflokkurinn (SNS) kosningabaráttu sína heima fyrir á hótunum við kjósendur og á því að ala á ótta við Vesturlönd. Þá greiðir stjórnin einnig beint fólki sem stendur höllum fæti fjárhagslega og beitir það þrýstingi og þvingunum. Með því að beita kjósendur þrýstingi heima fyrir og takmarka jafnframt möguleika Serba erlendis til að kjósa verður kosningaferlið í grundvallaratriðum ósanngjarnt,“ segir hún.

Vísa fullyrðingum á bug

Í tilkynningu serbneska utanríkisráðuneytisins um málið fyrr í október er fullyrðingum Stúdentaflokksins um hindrun yfirvalda í kosningunum vísað á bug. Þar kemur fram að til þess að ríkisborgari lýðveldisins Serbíu, sem dvelur tímabundið erlendis, geti nýtt kosningarétt sinn þurfi hann að hafa skráð lögheimili í lýðveldinu Serbíu og vera skráður í sameinuðu kjörskrána, og leggja fram beiðni um skráningu í kjörskrá í gegnum næstu sendiskrifstofu eða ræðisskrifstofu þar sem fram kemur að hann muni kjósa erlendis.

„Sendiráðið eða ræðisskrifstofan framsendir síðan beiðnina rafrænt í gegnum upplýsingakerfið til viðkomandi sveitarfélags eða borgarstjórnar, sem hefur heimild til að taka ákvörðun um beiðni um að kjósa erlendis,“ segir í tilkynningu þeirra sem birt var 1. október.

Myndin er tekin á mótmælum stúdenta í maí á þessu ári í Belgrad. Fjöldi mótmæla hefur farið fram síðustu tvö ár. Vísir/EPA

Þar kemur einnig fram að frestur til þess að skila umsókn um að kjósa erlendis hafi runnið út á miðnætti þann 3. október að Belgradtíma en Belgrad er höfuðborg Serbíu.

„Sendiráða- og ræðisnet okkar vinnur af fullum krafti að þessu verkefni á hverjum degi til að afgreiða allar innkomnar beiðnir, eins og sést á því að ákvarðanir eru tvöfalt fleiri en í síðustu kosningum, svo það er alls ekkert rými fyrir útbreiðslu ósannra sagna um meinta hindrun. Þeir sem vilja setja alla þjóðina á „hunsa“ gætu lært eina af elstu meginreglunum sem réttarkerfið byggir á, Ignorantia iuris nocet eða vanþekking á lögum er skaðleg. Þótt maður hafi hátt þýðir það ekki að maður hafi rétt fyrir sér. Raunar er hið gagnstæða oft raunin,“ segir að lokum.

#mótmæla #serbar #íslandi #ósanngjarnt #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262944696d/serbar-a-islandi-motmaela-thad-er-osanngjarnt-ad-taka-af-folki-rettinn-til-ad-kjosa-

📰 Aðrar fréttir

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 1
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 1
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 1
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 1
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 1
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 1
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 1
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í lj...
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
📅 07.10.2026 👁️ 2
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
Nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvik var formlega opnað í dag. Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf, og er ...
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún segist hafa upplifað alls k...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkj...
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
📅 07.10.2026 👁️ 3
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
Rússar óttast aðra stóra herkvaðningu í landinu eftir að Vladímír Pútín forseti skerti frelsi ungra manna fyrir skemmstu. Ungir menn mega nú meðal ann...
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
📅 07.10.2026 👁️ 2
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis o...
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
📅 07.10.2026 👁️ 3
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn f...
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
📅 07.10.2026 👁️ 3
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
Kemi Badenoch has the support of her party but the Tories still trail Labour and Reform in opinion polls.
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
📅 07.10.2026 👁️ 3
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
Rússneska lýðheilsustofnunin, Rospotrebnadzor, segir enga hættu á að faraldur brjótist út í landinu. Þetta eru viðbrögð við fréttum af dauðsfalli 28 á...
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
Í vor fór fram töluverð umræða um fjölda skóladaga á Íslandi eftir að Menntamálaráðuneytið birti tilkynningu þar sem fram kom að kennsludagar væru sty...
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
Árekstur varð á Vesturlandsvegi við Bauhaus á fjórða tímanum í dag. Einn bíll valt út af veginum.Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi lögreglustö...
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
Hægt verður að fylgjast með blaðamannafundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ríkisstjórnaroddv...
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
📅 07.10.2026 👁️ 2
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
Rannsókn er lokið vegna gruns um vopnalagabrot um verslunarmannahelgina á Akureyri. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fimm menn, sem reyndust h...
Canada suspends plans to expand assisted dying to people with mental illness
📅 07.10.2026 👁️ 3
Canada suspends plans to expand assisted dying to people with mental illness
People with mental illness alone were to be eligible for assisted dying in Canada in March 2027, but that has now been paused indefinitely.
Breytingar á úthlutun feli í sér „óviðunandi óvissu fyrir fjölmiðlarekstur“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Breytingar á úthlutun feli í sér „óviðunandi óvissu fyrir fjölmiðlarekstur“
Útgáfufélagið Birtíngur ehf. krefst þess að Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummat um að félagið uppfylli ekki skilyr...
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu - Vísir
Douglas hefur verið á fjölmiðlatúr fyrir ævisögu sína, One Helluva Ride, sem kom í bókabúðir í gær. Douglas ljóstraði upp um það í síðustu viku að han...
Opinberir styrkir ýta höfundum út í útgáfubransann
📅 07.10.2026 👁️ 3
Opinberir styrkir ýta höfundum út í útgáfubransann
Ný skáldsaga Steinars Braga kemur út hjá nýja forlaginu Fuglinum. Útgefandi segir fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýta höfundum út í útgáfubran...
Frumvarp um námsgögn á ís þrátt fyrir 20 ára innviðaskuld
📅 07.10.2026 👁️ 4
Frumvarp um námsgögn á ís þrátt fyrir 20 ára innviðaskuld
Viðvarandi fjármagnsskortur hefur leitt til uppsafnaðs skorts á námsgögnum í grunnskólum á Íslandi.Frumvarp til nýrra heildarlaga um námsgögn átti að ...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Sjötíu ára skuldahringrás að renna sitt skeið. Hvað gerist þá á Íslandi?
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Sjötíu ára skuldahringrás að renna sitt skeið. Hvað gerist þá á Íslandi?
Nú blikka mörg viðvörunarljós samtímis. Ég hef skrifað á þessu ári um vaxandi ríkisskuldir heimsins og sérstaklega um langa enda vaxtakúrfunnar, því þ...