Útgáfufélagið Birtíngur ehf. krefst þess að Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummat um að félagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Birtíngi – sem kveðst hafa skilað ítarlegum andmælum til nefndarinnar.
Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur í frummati komist að þeirri niðurstöðu að Birtíngur uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025.
Í tilkynningu Birtíngs segir að nefndin telji efni tímaritanna Vikunnar og Húsa og híbýla vera umfjöllun um samfélagsleg málefni en ekki fréttir og fréttatengt efni. Birtíngur hafi áður hlotið stuðning vegna ritstjórnar Vikunnar en umfjöllun um samfélagsleg málefni sé ekki lengur stuðningshæf eftir lagabreytingu í sumar.
Birtíngur bendir á að Vikan og Hús og híbýli séu fjölmiðlar í skilningi laga. Það skjóti skökku við að lögin leggi sömu skyldur á alla skráða fjölmiðla meðan aðeins hluti þeirra eigi kost á stuðningi sem kenndur sé við fjölmiðla.
„Og þá eingöngu ef efnið fellur undir þrönga túlkun á því hvað teljist fréttir.“
Umsókn Birtíngs varði rekstrarkostnað ársins 2025 en sé metin í samræmi við lagabreytingu og reglugerð frá sumrinu 2026 og því eftir að kostnaðurinn féll til.
„Slík óvissa er óviðunandi fyrir fjölmiðlarekstur, þar sem ráðningar, útgáfuáætlanir og samningar eru gerðir langt fram í tímann. Ef reglurnar geta breyst eftir á og útilokað heilan flokk miðla eru tímarit í hættu og gætu horfið alveg af íslenskum fjölmiðlamarkaði.“
Frummat nefndarinnar sýni að núverandi kerfi geri ekki ráð fyrir tímaritum.
„Ef stuðningskerfið nær ekki til þeirra veikist starfsumhverfi íslenskrar tímaritaútgáfu og þess menningararfs sem hún geymir.
Birtíngur hvetur stjórnvöld til að finna tímaritum stað í kerfinu, annaðhvort innan fjölmiðlastuðnings eða með bókaútgáfu.“