Ný skáldsaga Steinars Braga kemur út hjá nýja forlaginu Fuglinum. Útgefandi segir fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýta höfundum út í útgáfubransann.
„Ég og Steinar Bragi höfum verið miklir vinir lengi og höfum lengi furðað okkur á fjárhagslegri hlið bókaútgáfu fyrir rithöfunda,“ segir Halldór Armand Ásgeirsson, rithöfundur og útgefandi. Þeir segja hefðbundna bókaútgáfu ekki ganga upp fyrir rithöfunda.
„Það þarf bara einfaldlega að hugsa upp einhverjar nýjar leiðir til að gera þetta,“ heldur Halldór áfram.
Forlagið fær formlegra nafn en Flatkakan ehf.
Halldór stofnaði útgáfu 2024 um bók sína Mikilvægt rusl. Sú reynsla varð byr undir vængi höfundarekins forlags sem á að skila meiru til þeirra sjálfra. Fyrirtækið að baki útgáfunni ber nafnið Flatkakan ehf. Þegar ljóst var að útgáfan væri að færa út kvíarnar ákváðu stjórnendur hennar að taka upp formlegra nafn.
„Útgáfan heitir núna Fuglinn útgáfa.“ Að henni standa Halldór og Einar Aðalsteinsson. „Við erum mjög spenntir fyrir því að gefa út nýja skáldsögu Steinars Braga, sem heitir Frelsarinn.“
Ferill Steinars Braga spannar þrjá áratugi. Hann hefur gefið út vel á annan tug bóka, lengst af hjá Forlaginu undir merkjum Máls og menningar. Síðustu ár hefur hann skrifað spennusögur með vísindaskáldlegu ívafi. Í Frelsaranum er hann á sömu slóðum og hann hefur verið undanfarin ár.
Af hverju gerast þá höfundar ekki útgefendur?
Í samtali við fréttastofu sagði Steinar Bragi að greiðslur til rithöfunda hefðu dregist saman, hvort sem rætt væri um listamannalaun, bókasafnssjóð eða eitthvað annað. „Það hefur verið þróunin lengi að bóksala hefur dregist saman,“ segir Steinar.
Það hefði verið högg þegar viðbrögð stjórnvalda fólust í að veita útgefendum útgáfustyrk sem samsvaraði fjórðungi af kostnaði við útgáfu. „Margir rithöfundar spurðu sig af hverju þeir gerðust þá ekki bara útgefendur.“
Burtséð frá kjaramálunum segir Steinar að sér hugnist hugmyndin um rithöfundarekið forlag vel. „Ef það væri hægt að reka forlag sem væri ekki með mikla yfirbyggingu og gengur út á samhjálp höfunda.“ Hann bendir á að tæknin hafi einfaldað mörg verkefni í útgáfustarfsemi.
Halldór segir þá félaga lengi hafa rætt hugmyndina um höfundarekið forlag „þar sem reynt væri að sjá til þess að höfundar fengju meira fyrir sinn snúð,“ segir Halldór.
„Ég gaf sjálfur út þarna mína eigin bók 2024. Það gekk, að mér fannst, ljómandi vel. Mér fannst bara gaman að prófa að gera þetta aftur og prófa að gefa út einhvern annan.“
Vilja stærri bita af kökunni til höfunda
Hann bendir á að í stöðluðum útgáfusamningi fái höfundur 23% af heildsöluverði hverrar bókar. Með því að gefa bókina út sjálfur hafi allar tekjur ratað til hans. Því fylgi vitaskuld meira umstang en Halldór segir verkefnið vel viðráðanlegt.
„Mér fannst allavega þegar ég gerði þetta í fyrsta sinn fyrir tveimur árum að þá fannst mér dreifingarhlutinn vera miklu minna vesen en ég hélt, sko, sem er auðvitað bara mjög tengt því að það eru miklu færri bókabúðir á Íslandi en voru áður.“
„Við höfum bara lengi verið þeirrar skoðunar að þetta gamla klassíska útgáfumódel eins og það hefur gengið í einhverja áratugi, býst ég við, það bara gengur ekki lengur upp, sko. “
Að sama skapi standa höfundar þá einir í markaðssetningu og kynningu. Halldór segir mikilvægt að hafa svolítið gaman af því. „Við erum líka að vona að við getum gert það af meiri krafti núna. Við erum bara með þessa bók og stærri forlög eru auðvitað með mjög marga höfunda og kannski ekkert svo stórar markaðsdeildir.“
Höfundar í dsarwinískri baráttu um listamannalaun
Sjálfsútgáfa er ekki ný af nálinni en aðspurður tekur Halldór undir að það heyri til tíðinda að höfundar sem hafi gefið út vinsælar bækur hjá forlögum fari þessa leið. Hann tekur undir með Steinari að opinberir styrkir til forlaga í stað rithöfunda hvetji fólk til að finna nýjar leiðir í útgáfu.
„Sú leið var farin en ekki einhvern veginn að reyna að styrkja rithöfundana sem verða bara að vera í einhverri darwinískri baráttu um listamannalaun,“ segir Halldór. „Þá auðvitað blasir við að rithöfundar gerist útgefendur.“
Útgáfan hefur aðeins bók Steinars Braga á sínum snærum og ætlar að sjá til hvernig verkefnið gengur. „Og svo er hugmyndin vonandi að reyna kannski að færa aðeins út kvíarnar á næsta ári.“