Umhverfis- og orkustofnun hefur kynnt áform um að veita Samherja bráðabirgðaheimild til að starfrækja fiskþurrkun í Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit en starfsleyfi þurrkunarinnar var fellt úr gildi, með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Reksturinn hefur verið umdeildur í sveitinni. Ósáttir íbúar kærðu starfsleyfið og vísuðu m.a. til lyktarmengunar, hávaða og mengaðs frárennslis. Aðrir í sveitinni og einnig sveitarstjórnin benda hins vegar á að um einn stærsta vinnustaðinn í sveitarfélaginu sé að ræða og sögðu það áfall að starfsleyfið hafi verið fellt úr gildi.
Umdeild fiskþurrkun Samherja sem svipt var starfsleyfi á að fá að starfa áfram að sinni