Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Höfum við þá efni á að bæta enn einum óvissuþættinum við – óvissu um þær leikreglur sem eiga að gilda á EES-markaðnum?Þetta er efnahagslega spurningin sem mér finnst vanta inn í umræðuna um bókun 35.
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?