Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa hætt við afgreiðslu á mikilvægu frumvarpi um innflytjendamál vegna harðvítugs ágreinings innan flokksins. Frumvarpið, sem á að heimila auknar fjárveitingar til tollgæslu, innflytjendamála og landamæraeftirlits, innihélt þó aðra klausu sem Bandaríkjaforseti beitir sér fyrir.
Sjaldséð andstaða Repúblikana gegn Trump
Donald Trump vildi að settur yrði sérstakur skaðabótasjóður á laggirnar. Skaðabótasjóðurinn yrði ætlaður þeim stuðningsmönnum Trumps sem halda því fram að alríkisstofnanir hafi beitt þá ólögmætum aðgerðum.
Frumvarpið hefur verið sett til hliðar og verður ekki afgreitt á meðan Trump heldur skaðabótasjóðnum til streitu.
Opinber andstaða Repúblikana við forsetann er sjaldséð en niðurstaða málsins voru vonbrigði fyrir leiðtoga flokksins sem höfðu getað ráðstafað um 70 milljörðum bandaríkjadollara í fjárveitingar til innflytjendamála, tollgæslu og landamæraeftirlits. Þingmennirnir töldu að samþykkt skaðabótasjóðsins myndi eitra orðspor þingflokksins fyrir komandi þingkosningar í Bandaríkjunum, kosningarnar í ár einkennast af áhyggjum af framfærslukostnaði.
Demókratar sömuleiðis gagnrýnir
Demókratar gagnrýndu skaðabótasjóðinn sömuleiðis og bentu á að ef hann yrði samþykktur myndi skattfé almennings meðal annars renna til þeirra stuðningsmanna Trump sem stóðu fyrir árásinni á þinghúsið í Washington 6. janúar 2021. Stuðningmennirnir voru margir hverjir sakfelldir fyrir ofbeldi gegn lögreglumönnum.