Verj­endur for­dæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitt­hvað fas­ista-, kommúnistalögregluríki“ - Vísir

Verj­endur for­dæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitt­hvað fas­ista-, kommúnistalögregluríki“ - Vísir

Verj­endur for­dæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitt­hvað fas­ista-, kommúnistalögregluríki“ - Vísir

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra birti í fyrradag frumvarpsdrög þar sem boðuð er hertari löggjöf gegn skipulagðri brotastarfsemi. Breytingarnar felast meðal annars í þyngri refsingu, lengra gæsluvarðhaldi og að lögreglu verði heimilt að ráðast í rannsóknaraðgerðir áður en dómari hefur veitt leyfi. Þá megi lögregla bíða í allt að sex vikur áður en hún afhendir verjendum gögn.

Þegar lögregla vill ráðast í sérstakar aðgerðir, svo sem húsleit eða hlerun, þarf hún í dag að bíða eftir því að dómstólar veiti þeim sérstakt leyfi í formi rannsóknarúrskurðar.

En samkvæmt frumvarpsdrögum í samráðsgátt á að gefa lögreglu heimild til að ráðast í slíkar aðgerðir áður en heimild fæst frá viðhlítandi dómstól, ef málið er brýnt. Þá megi jafnvel leggja fram beiðni um að ráðast í slíka aðgerð tveimur dögum eftir að hún hófst.

„Ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi sakarspjöllum er heimilt að grípa til aðgerða án tafar. Ákvörðun um rannsóknaraðgerð er tekin af ákæranda og skal krafa lögð fram fyrir héraðsdóm svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en 48 klst. eftir að aðgerð hófst. Fallist dómari ekki á kröfuna skal aðgerð þegar í stað hætt og öllum upplýsingum og gögnum sem aflað hefur verið með henni eytt,“ segir meðal annars í frumvarpsdrögum ráðherrans.

Aðför að réttaröryggi almennings

Ljóst er að um nokkuð viðamiklar breytingar á heimildum lögreglu er að ræða og Vísir ákvað því að bera þær undir þá sem mesta reynslu hafa af því að eiga við lögregluna, verjendur í sakamálum.

„Eigum við ekki að leyfa þessu góða fólki að læra á þær heimildir sem það er með nú þegar, áður en það er farið að veita þeim auknar heimildir?“ spyr Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson,  í stuttu samtali við blaðamann.

Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður.Vísir/Anton Brink

Þá segist hann telja boðaðar breytingar aðför að réttaröryggi almennings og bendir á að heimildir lögreglu nái til allra, ekki bara þeirra sem sannanlega brjóta af sér.

„Eins og gerðist í bankahruninu, gilda þessar heimildir gagnvart öllum. Þær gilda ekki bara gagnvart þeim sem fólk almennt séð heldur að megi beita órétti. Þetta eru almennar heimildir sem, í ljósi tíðarandans hverju sinni, beinast gegn öllum,“ segir hann og vísar í hljómsveitina Manic Street Preachers, sem söng eftirminnilega If You Tolerate This Your Children Will Be Next. (í. Ef þú lætur þetta yfir þig ganga verða börnin þín næst).

Lögregla misnoti gæsluvarðhald nú þegar

Sveinn Andri Sveinsson segir varðandi boðaða tvöföldun á hámarkslengd gæsluvarðhalds án útgáfu ákæru, úr 12 vikum í sex mánuði, að það hafi sýnt sig á þeim rúmu þrjátíu árum sem hann hefur sinnt verjendastörfum að lögregla hafi ávallt tilhneigingu til þess að misnota gæsluvarðhaldsúrræðið. 

„Það liggur fyrir að gæsluvarðhald, sérstaklega einangrun, hefur varanleg áhrif á andlega líðan sakborninga. Ég leyfi mér að setja það framar í forganginn en það hversu hratt lögregla getur unnið í málum.“

Fleira undir en rannsóknarhagsmunir lögreglu

Þá segir hann varðandi boðaða heimild lögreglu til að ráðast í rannsóknaraðgerðir og óska svo eftir dómsúrskurði að hann gjaldi mikinn varhug við slíkum áformum.

Þau myndu leiða til þess að lögregla beiti alltaf því úrræði og nefnir því til stuðnings heimild laga um meðferð sakamála til húsleitar án undangengins úrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi sakarspjöllum. 

„Það úrræði hefur lögreglan misnotað. Það er ekki fyrr en lögreglan hættir að misnota núverandi heimildir, þegar hún getur farið með núverandi heimildir, þá er hægt að fara að skoða það að bæta við heimildirnar. “

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður.Vísir/Ívar Fannar

Sveinn Andri bendir á að margt fleira sé undir en rannsóknarhagsmunir lögreglu þegar ákveðið er hvort heimild sé veitt fyrir rannsóknaraðgerðum. Í húsleit sé það friðhelgi heimilisins, í rannsókn á fjármálagögnum sé það bankaleyndin og friðhelgi einkalífsins sé undir í símahlerunum, svo fátt eitt sé nefnt.

„Við stefnum í fasista-, kommúnistalögregluríki með því að opna á það að lögreglan geti bara farið í húsleit og rofið friðhelgi heimilisins, hlerað síma og rofið þannig friðhelgi einkalífsins, rofið strangar reglur um bankaleynd með því að fara inn á reikninga og svo framvegis, eins og þetta er væntanlega hugsað allt saman. Þetta er voðalega falleg hugsun á bak við þetta en þetta er mjög varasamt og þetta er einungis til þess fallið að auka misnotkun lögreglu á þeim heimildum sem hún hefur. Þannig að þetta mun bitna á almenningi.“

Af óskalista ákæruvaldsins

Loks segir Sveinn Andri að hann voni að Alþingi hleypi áformum dómsmálaráðherra ekki í gegnum þingið.

„Þó að dómsmálaráðherra sé að vinna mjög gott starf í mörgum þáttum, þá finnst mér þessi tilhneiging til þess að samþykkja alltaf óskalista ákæruvaldsins algjörlega út úr kortinu.“

Á sama tíma og lögreglan setji fram slíkan óskalista sé hún margítrekað staðin að því að misnota núverandi heimildir og baka ríkinu þannig bótaábyrgð með óþörfum og ótímabærum rannsóknaraðgerðum.

„Það væri mun nær að taka lögreglu og ákæruvaldið til gagngerrar endurskoðunar, og hvernig þeir framkvæma þessar aðgerðir sínar, heldur en að veita þeim rýmri heimildir. Ég hef verið í þessu í 35 ár og þetta er stöðugt tilfellið, þessi misnotkun lögreglunnar á núgildandi heimildum.“

„Við erum að tala um frelsissviptingu fólks“

Loks ræddi Vísir við Elimar Hauksson, sem er á sama máli og kollegar sínir. Hvað lengingu gæsluvarðhalds varðar bendir hann á að tólf vikna reglan setji nauðsynlegan þrýsting á ákæruvaldið að ljúka rannsókn og gefa út ákæru.

„Svo er auðvitað hætta á því að menn séu í gæsluvarðhaldi og upp úr dúrnum komi síðan sýkna. Nógu himinhá bótaskylda getur skapast á því að hafa haldið mönnum í gæsluvarðhaldi í tólf vikur fram að útgáfu ákæru. Síðan sitja þeir áfram í gæsluvarðhaldi eftir útgáfu ákæru og geta setið þar heillengi í gæsluvarðhaldi án þess að endanlegur dómur komi. Með því að færa þetta í sex mánuði er bara verið að lengja fyrsta fasann, og ekkert lengja hann aðeins, það er verið að tvöfalda hann. Það er ekkert smáræði, af því að við erum að tala um frelsissviptingu fólks. Því er kippt upp með rótum úr lífi sínu, fjarlægt frá fjölskyldum sínum og haft í fangelsi.“

Þá nefnir hann í þessu samhengi að gæsluvarðhaldsfangelsi landsins séu þegar hvellsprungin og gæsluvarðhaldsfangar séu í auknum mæli látnir dúsa í fangageymslum lögreglustöðva lengur en talist geti ásættanlegt, enda séu aðstæður þar óboðlegar.

„Það væri náttúrulega mun betra fyrir ráðherra að ráðast í það verkefni að leysa plássleysið í fangelsunum. Þó ekki væri nema með bráðabirgðalausnum, sem mér er kunnugt um að er búið að kynna fyrir stjórnmálamönnum hér á landi, tilteknar lausnir til að leysa þennan vanda tímabundið. Það er alveg hægt að rigga upp bráðabirgðaklefum hjá þessum svokölluðu gámaleigum eða öðru slíku, sem geta boðið upp á gríðarlega ágætan húsakost og það er hægt að gera það í hvelli ef viljinn er fyrir hendi.“

Alþingi þurfi að koma í veg fyrir „Orwellískar“ aðstæður

Í frumvarpsdögum dómsmálaráðherra er einnig lagt til að stofnaður verði samráðsvettvangur lögreglu og annarra stjórnvalda, og jafnvel einkaaðila, gegn skipulagðri brotastarfsemi með gagnkvæmri upplýsingamiðlun, þar með talið persónuupplýsingum.

Þá verði lögreglu veitt ný heimild til löggæslumyndavéla, þar sem stofnað verði miðlægt kerfi, þar sem ráðherra fær heimild til að setja reglur um notkun gervigreindar, andlitsgreiningar, búkmyndavéla og sjálfvirkrar greiningar skráningarnúmera.

Elimar Hauksson lögmaður.Vísir/Vilhelm

Við þetta gerir Elimar verulegar athugasemdir og segir mikilvægt að Alþingi framselji ráðherra ekki of víðtækt vald til þess að auka eftirlit með borgurum, þar sem mjög viðkvæmar persónuupplýsingar séu undir.

„Þær eru það ekki endilega alltaf, kannski er bara einhver á leiðinni í búðina sem ratar þarna inn, en það geta ratað þarna inn mjög viðkvæmar persónuupplýsingar. Þá er mjög mikilvægt að þingið marki skýran ramma um þetta. Manni þykir þetta ansi Orwellískar tillögur.“

Undantekningar verði að meginreglunni

Elimar segist telja að boðuð rýmkun heimilda lögreglu til að ráðast í rannsóknaraðgerðir án dómsúrskurðar myndi skerða réttaröryggi og friðhelgi einkalífs borgaranna. Slíkar undantekningarreglur hafi tilhneigingu til þess að verða að meginreglum. Til dæmis sé það orðið að undantekningu að lögregla fullnýti ekki heimild til að halda gögnum frá verjanda í allt að fimm vikur. Þá heimild eigi vel að merkja að lengja í sex vikur, sem hann skilji ekkert í.

Hann leggur frekar til að heimildir lögreglu til rannsóknaraðgerða verði takmarkaðar við alvarlegri mál, enda sé þeim nú beitt í smæstu málum.

Lögregla fái að kíkja á svarblaðið fyrir prófið

Í frumvarpsdrögum ráðherra segir að hafni dómari kröfu lögreglu um rannsóknaraðgerðir, eftir að ráðist hefur verið í þær, skuli aðgerð þegar í stað hætt og öllum upplýsingum og gögnum sem aflað hefur verið með henni eytt.

Í íslensku sakamálaréttarfari gildir meginregla um frjálst sönnunarmat dómara, sem gerir það að verkum að dómari er ekki bundinn af fyrir fram gefnum reglum þegar hann metur hvað hann telur sannað í hverju máli. Þannig má dómari til að mynda taka mið af framburði sem byggir á ólögmætum rannsóknaraðgerðum. 

„Þarna er lögreglu veitt heimild til þess að kíkja á svarblaðið áður en prófinu er skilað,“ segir Elimar um boðaða heimild lögreglu til að rannsaka og biðja svo um leyfi.

Þegar blaðamaður bar sama atriði undir Svein Andra var svarið afdráttarlaust: „Þetta er bara kjaftæði.“

Laga ætti augljósan galla frekar

Loks segir Elimar að gallar séu á sakamálalögum, sem ráðherra ætti að lagfæra í stað þess að rýmka heimildir lögreglu.

Sem dæmi nefnir hann misræmi í heimild aðila sakamála til að skjóta frávísunarúrskurðum til Hæstaréttar. Honum hafi verið málið hugleikið undanfarna daga eftir að Landsréttur sneri frávísunarúrskurði héraðsdóms við í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis.

Engri kæruheimild sé fyrir að fara í sakamálalögum þegar Landsréttur snýr frávísun héraðsdóms við og knýr mál til efnismeðferðar í héraði. Það sé bara þegar ákæruvaldið verður undir og Landsréttur frávísar sakamáli sem slík heimild er til staðar.

Hann bendir á að þetta geti leitt til margra ára málaferla og mikils kostnaðar sem hefði hugsanlega mátt forðast ef hægt hefði verið að fá úrlausn Hæstaréttar um formsatriði strax í upphafi.

„Fyrst það á að fara að skoða sakamálalögin þá er þetta náttúrulega eitthvað sem ætti að skoða. Dómsmálaráðherra er alveg kunnugt um þetta og það er miður að það séu ekki boðaðar breytingar á þessum augljósa lapsus í sakamálalögum, heldur eigi bara að halda áfram að mylja undir lögreglu og ákæruvald í stað þess að gæta hagsmuna allra sem eiga aðild að svona máli.“

#boðaðar #breytingar #fordæma #stefnum #verjendur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930075d/verjendur-fordaema-bodadar-breytingar-stefnum-i-eitthvad-fasista-kommunistalogregluriki-

📰 Aðrar fréttir

Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar - Vísir
Fyrst var íbúum í Longyearbyen á Svalbarða ráðið frá því að drekka vatn úr krana í september í fyrra þegar styrkur mangans í því mældist tuttugu og fi...
Ný könnun um framtíð Christu Pike – Önnur aftaka eða mildun í lífstíðardóm?
📅 20.10.2026 👁️ 0
Ný könnun um framtíð Christu Pike – Önnur aftaka eða mildun í lífstíðardóm?
Bandaríkjamenn eru klofnir í afstöðu sinni til þess hver framtíð hins dauðadæmda morðingja Christu Pike eigi að vera. Þetta kemur fram í nýrri könnun....
Áhrifamikil orð Jóhannesar á sérstökum degi: „Því á morgun getur það verið of seint“
📅 20.10.2026 👁️ 0
Áhrifamikil orð Jóhannesar á sérstökum degi: „Því á morgun getur það verið of seint“
„Í dag er ég nákvæmlega jafngamall og pabbi var þegar hann lést þann 10. febrúar 1983. Hann lifði í 19.983 daga - jafnmarga daga og ég hef lifað.“Svon...
„Ef ég hefði fundið til vanhæfis hefði ég alltaf vakið athygli á því“
📅 20.10.2026 👁️ 0
„Ef ég hefði fundið til vanhæfis hefði ég alltaf vakið athygli á því“
Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar á Laugum var afturkallað eftir kæru fimm íbúa. Fyrirtækið bíður úrskurðar um bráðabirgðaleyfi.Samherji er stærs...
Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða - Vísir
„Ég er að skríða frá Njarðvík til Bessastaða með umslag til Höllu,“ segir Axel Máni í samtali við Vísi en tekur fram að hann vilji ekki gefa upp innih...
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukast
📅 20.10.2026 👁️ 0
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukast
Ísraelska lögreglan hefur handtekið tíu sem eru grunaðir um árásir á diplómata og bandaríska fjölmiðlakonu. Árásir landtökufólks á ólífubændur eru þeg...
Seltjarnarnesbær verður að hagræða
📅 20.10.2026 👁️ 0
Seltjarnarnesbær verður að hagræða
Mörg sveitarfélög standa frammi fyrir erfiðari rekstri en áður. Við blasir að þau verða að fara í hagræðingaraðgerðir. Fámennasta og minnsta sveitarfé...
Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku - Vísir
Saksóknarayfirvöld í Danmörku hafa gefið út að mennirnir tveir hafi í gær tekið myndir af höfuðstöðvum varnarmálafyrirtækisins MyDefence á Norður-Jótl...
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassa
📅 20.10.2026 👁️ 0
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassa
Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstu vikum. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvo...
Hiti undir frostmarki og hálka á vegum
📅 20.10.2026 👁️ 0
Hiti undir frostmarki og hálka á vegum
Hiti er undir frostmarki á fjallvegum á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Þar af leiðandi er hálka og krapi á nokkrum vegum og ökumenn verða að hafa varan...
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
Nína flutti út til Parísar í skiptinám í lok sumars og nýtur lífsins úti í botn þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Blaðamaður ræddi við hana um lífið í þess...
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Óhugnan­lega margir að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Óhugnan­lega margir að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
„Hver við erum og hver viljum við vera, eða verða, er spurningin. Við erum evrópsk. Ísland er hluti af Evrópu. Ekki bara landfræðilega, heldur líka ma...
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
📅 20.10.2026 👁️ 2
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
Að minnsta kosti fimmtán særðust og fimm létust þegar rússneskur dróni hæfði almenningsgarð fyrir utan kaffihús í Kharkiv í Úkraínu, meðal þeirra sem ...
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
📅 20.10.2026 👁️ 2
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
Trevor Dietz, sem liðsmenn írsku hljómsveitarinnar Fontaines D.C. kölluðu sjötta meðlim hennar, var 47 ára þegar hann lést í júní. Rannsókn á andláti ...
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
Ukraine had accused the US of withholding key intelligence - a claim rejected as "scandalous" by Washington.
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
📅 20.10.2026 👁️ 2
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
Tommy Lee, klámmyndaleikari og fyrrverandi hnefaleikamaður, hefur verið orðaður við að vera barnsfaðir hinnar umdeildu klámstjörnu Bonnie Blue. Tommy ...
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
📅 20.10.2026 👁️ 2
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu í ljósi mótmæla og óeirða sem ríkt hafa víðs vegar um álfuna síðustu daga. Fó...
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
📅 20.10.2026 👁️ 2
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
The government is expected to accept all 27 recommendations made in the review by ex-Ofsted boss, Sir David Bell.
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
📅 20.10.2026 👁️ 2
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.Tilkynnt var um tvær hópuppsagni...
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.Fó...
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
📅 20.10.2026 👁️ 2
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
HarmageddonÓeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stór...
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
Kostnaður sem féll til hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands fyrr í mánuðinu...
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var rætt við Elliða í tilefni af Facebook færslu hans sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann ...
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
📅 20.10.2026 👁️ 2
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að senda sigmenn í leit að lík Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rúmum t...
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
📅 20.10.2026 👁️ 3
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
Leikarinn Jason Sudeikis opnar sig um það sem fór úrskeiðis í sambandi hans og leikkonunnar og leikstjórans Oliviu Wilde.Leikarinn tjáir sig venjulega...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
Bandaríkin ganga til þingkosninga 3. nóvember. Stærsta spurningin er ekki aðeins hver vinnur, heldur hvort sigurvegarinn fái að beita því valdi sem kj...
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
📅 20.10.2026 👁️ 3
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var...
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
Ungt par í Bretlandi missti dóttur sína aðeins tíu daga gamla úr HSV vírusnum, sem veldur frunsu. Móðirin segist berjast við sektarkennd þar sem líkle...
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu.Þetta sagði h...
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfull...
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
📅 20.10.2026 👁️ 2
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
Íris Erlingsdóttir skrifar: Hvað myndi gerast ef allir íslenskir karlmenn legðu niður störf í einn dag? Ekki bara þeir sem sitja á skrifstofum, í stjó...
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
📅 20.10.2026 👁️ 2
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirbu...
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagðist hafa heyrt af kennara sem notaði legghlífar í vinnunni vegna endurtekinna sparka ...
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyr...
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
📅 20.10.2026 👁️ 2
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvan...
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur birtir afar áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann minnist örlaga móðursystur sinnar, Rögnu Fossberg, s...
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að átta manns séu í áhöfn Hildar og að ágætisveður hafi verið á staðnum og...
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
📅 20.10.2026 👁️ 4
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og sérstaklega hættulega líkamsárás á sambýliskonu sína. Maðurinn var...
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
📅 20.10.2026 👁️ 4
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá kæru manns sem sótt hafði um starf hjá Vegaerðinni. Hafði hann krafist upplýsinga um nöfn allra annarr...
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fa...
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
📅 20.10.2026 👁️ 3
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
Counter-terror police say the men have been arrested on suspicion of assisting a foreign intelligence service.
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 2
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Two men re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 0
Two men re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son m...
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sa...
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með þ...
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og fréttamaður RÚV, segir hugtök á borð við upplýsingaóreiðu og falsfréttir geta orðið að vopnum til að þagga ...
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
📅 20.10.2026 👁️ 4
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir að hún verði stundum hissa á því hvað hún er fljót að bregðast við því versta, það sé e...