Bandaríkin ganga til þingkosninga 3. nóvember. Stærsta spurningin er ekki aðeins hver vinnur, heldur hvort sigurvegarinn fái að beita því valdi sem kjósendur fela honum.Ég hef um nokkurt skeið haft vaxandi áhyggjur af þróun bandarísks lýðræðis. Ekki vegna þess að ég sé andstæðingur Repúblikanaflokksins eða telji Demókrata hafna yfir gagnrýni, heldur vegna þess að grundvallarreglur lýðræðisins virðast ekki lengur sjálfsagðar í landinu sem lengi hefur verið helsti bakhjarl hins frjálsa heims.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?