Hún segir vanta fleiri fangelsispláss og það fáist með byggingu Stóra-Hrauns en einnig séu aðstæður í íslenskum fangelsum þannig í dag að ekki sé hægt að aðskilja erfiða fanga frá öðrum. Bygging Stóra-Hraun sé mikilvægt skref í áttina að því ná betri tökum á skipulagðri brotastarfsemi því það verði hægt að aðskilja fanga betur. Þá styðji bygging fangelsisins einnig betur við markmið þeirra um betrun fanga.
Þorbjörg Sigríður segir mjög breytta stöðu innan fangelsa á Íslandi. Það sé meiri fjöldi sem sé ekki í neinum tengslum við Ísland og í einhverjum tilvikum aðeins hingað kominn til að brjóta af sér. Hún segir einnig alvarlegri afbrot og þyngri dóma og það hafi áhrif á samsetningu fanga í fangelsum á Íslandi.
„Það eru hiklaust meiri áskoranir í fangelsismálum,“ segir hún og að ef íslenskum stjórnvöldum sé alvara í að ná árangri gegn skipulögðum glæpahópum þurfi að efla löggæslu, styðja við ákæruvald og dómstóla og það megi ekki gleyma fangelsiskerfinu.
Þorbjörg segir að þó að þörf sé á ríki fangelsið ekki á einni nóttu. Það sé gert ráð fyrir 56 plássum þegar fyrsti áfangi sé risinn en samhliða því verði Litla-Hraun enn rekið. Þegar annar áfangi, sá síðasti, sé risinn sé gert ráð fyrir 128 fangelsisplássum sem sé fjölgun frá því sem nú er.
Þorbjörg Sigríður segir að samhliða því að fjölga plássum sé verið að skoða aðrar aðgerðir til að rýmka fyrir og koma í veg fyrir að dómar fyrnist. Til dæmis séu þau að brottvísa erlendum föngum með engin tengsl við landið um leið og afplánun er lokið.
„Af því að við ætlum ekki að inngilda glæpamenn inn í íslenskt samfélag,“ segir hún og þekktasta dæmið um það sé Kourani.
„Við höfum verið að stíga alls konar skref til að létta á fangelsismálakerfinu,“ segir hún en að það sé skandall að menn séu dæmdir fyrir glæpi sína í fangelsi en stígi aldrei inn í fangelsi því hér sé ekki pláss í fangelsum.
Kyrrstaða síðustu tíu ár
„Það hefur verið kyrrstaða í fangelsismálum,“ segir hún og að það hafi lítið sem ekkert gerst í tíu ár. Á sama tíma hafi íbúasamsetning breyst, fólksfjölgun verið gífurleg og afbrot breyst. Það sé löngu tímabært að byggja nýtt fangelsi og hún sé rosalega ánægð með það.
Hún segir fyrsta áfanga fjármagnaðan í fjárlögum og fjármálaáætlun, en í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir jarðvegsvinnu og grunninum öllum. Hún segir ríkisstjórnina samhenta í því að fjármagna næstu áfanga líka og tryggja að framkvæmdinni verði tryggt.
Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar segir Litla-Hraun hafa verið stóran vinnustað í sveitarfélaginu og þau hafi tekið þátt í vinnu skipulags hvað varðar Stóra-Hraun. Hann segir þetta mikilvæga uppbyggingu og það skipti máli að hafa góða vinnustaði í sveitarfélaginu og þetta hafi verið það í gegnum tíðina.
Þegar fangelsið er fullbyggt verði fleiri störf og það sé jákvætt fyrir sveitarfélagið.
Bragi segist ekki hafa heyrt neikvæðar sögur um það að hafa fangelsið. Samfélagið hafi breyst en uppbyggingin líka og fangelsið verði sérhanna
„Þetta falli vel inn í umhverfið og samfélagið.“
Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri segir byggingu Stóra-Hrauns byltingu í sögu fangelsismála á Íslandi. Gert sé ráð fyrir að fangelsið verði risið 2031 og það megi ekki vera seinna.
„Mjög brýnt og mikilvægt og stórt skref.“
Hún segir of fá pláss og að boðunarlistinn hafi lengst of mikið og refsingar hafi fyrnst. Þau reyni að koma í veg fyrir það og á meðan það sé beðið eftir því að fangelsið rísi þurfi að grípa til bráðabirgðatillagna. Það sé verið að skoða það og aðrar afplánunarleiðir og hverjir eigi heima í afplánun utan fangelsisins.
Stór vinnustaður
Ragna segir ekki möguleika á Litla-hrauni að aðskilja hópa og það skipti mjög miklu máli, til dæmis með tilliti til skipulagðrar brotastarfsemi, að gera það. Þess vegna hafi menn verið sendir á Hólmsheiði sem sé ekki þannig fangelsi heldur eigi það að vera móttöku- og gæsluvarðhaldsfangelsi.
Hún segir að gert sé ráð fyrir því að í fangelsinu verði um hundrað starfsmenn og það verði því stór vinnustaður.